Innlent

Fatlað fólk kerfisbundið brotið niður strax í grunnskóla

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Öryrkjabandalag Íslands hélt opinn fund með frambjóðendum til borgarstjórnarkosninganna í ráðhúsinu í dag þar sem frambjóðendur kynntu sín stefnumál í málefnum fatlaðs fólks.

Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ, segir úrbætur nauðsynlegar víða í málaflokknum, ekki síst húsnæðismálunum.

„Fólk er bara í mjög vondum málum og það er mikill skortur á aðgengilegu húsnæði. Það er erfitt að fá það og félagslegt húsnæði er bara ekki í boði. Nú í dag eru 500 manns á biðlista bara hjá Brynju, hússjóði ÖBÍ.“

Á fundinum kynnti Öryrkjabandalagið könnun sem Gallup gerði fyrir það um viðhorf almennings til réttinda fatlaðs fólks.

Þar kemur fram að 84% vilja kjósa framboð sem bætir þjónustu við fatlað fólk og að eingöngu 55% eru sammála um að fatlað fólk í þeirra sveitarfélagi fái sömu tækifæri og aðrir.

Einnig að mikill meirihluti svarenda vill tryggja akstursþjónustu fyrir fatlað fólk með lögum, vill fjölga hlutastörfum hjá hinu opinbera fyrir fólk með skerta starfsgetu, tryggja eftirlit með aðgengi fyrir fatlað fólk í byggingar og jafnt aðgengi barna í íþrótta og tómstundastarf óháð fötlun og röskunum.

Sérstaklega var spurt hvernig skólar uppfylli þarfir nemenda með sérþarfir. Aðeins tæplega fjörutíu prósent svarenda fannst grunnskólar gera það vel og tæplega fimmtíu prósent var ánægt með leikskólana.

Þuríður segir bætta þjónustu skólanna vera forgangsmál.

„Kannski þurfa stjórnendur að horfa út fyrir boxið og skoða hvernig hægt er að laga þessa hluti fyrir börnin í skólanum. Þá lögum við samfélagið um leið, því þá alast einstaklingar upp við góða sjálfsmynd í staðinn fyrir að vera kerfisbundið brotnir niður í skólanum“ segir Þuríður Harpa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×