„Stjórn FIBA horfir á Taylor taka viljandi högg í hnakkann á Hlyni“ Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 22. mars 2018 21:34 Hrafn Kristjánsson, þjálfari Stjörnunnar. Vísir/Bára
Hrafn Kristjánsson, þjálfari Stjörnunnar, var virkilega ósáttur út í dómara leiks ÍR og Stjörnunnar í 8-liða úrslitum Domino’s deildar karla í körfubolta í kvöld. ÍR vann leikinn með þremur stigum 67-64 og er með 2-1 forystu í einvígi liðanna. Í fyrsta leikhluta braut Ryan Taylor, leikmaður ÍR, á Hlyni Bæringssyni og fékk fyrir það óíþróttamannslega villu. Hrafn var mjög ósáttur við það þar sem hann vildi fá Taylor rekinn út úr húsi fyrir að slá viljandi í höfuðið á Hlyn. „Það er svakalega leiðinlegt að verða vitni af því sem gerðist hér í fyrri hálfleik. Við erum með þrjá virkilega færa dómara sem eru vel staðsettir og stjórn FIBA að horfir á Taylor taka viljandi högg í hnakkann á Hlyni,“ sagði Hrafn eftir leikinn. „Það er dæmt frá dómaranum sem stendur lengst frá. Ef hann sá þetta þá veit ég ekki afhverju það var ásetningur en ekki út úr húsi.“ „Fyrir mér er högg í haus eða andlit út úr húsi og því miður þá hefði það átt að vera svoleiðis núna.“ Það var mjög mikið dæmt í þessum leik og þá sérstaklega var óvenju mikið af tæknivillum, enda hiti í mönnum. „Það er kannski bara eðlilegt miðað við hitann sem var í fólki. Þegar að fólk missir svona dóm, þegar það er vísvitandi verið að reyna að meiða leikmann úti á gólfinu, þá er eðlilegt að fólk missi stjórn á sér.“ „Það sprakk svosem í andlitið á okkur að missa stjórn á okkur og við þurfum aðeins að passa það,“ sagði ósáttur Hrafn Kristjánsson.
Dominos-deild karla Mest lesið Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Fótbolti McIlroy í baráttunni þrátt fyrir yfirvonandi skilnað Golf Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Körfubolti „Ég táraðist smá“ Sport „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ Körfubolti Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Handbolti „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Körfubolti Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Íslenski boltinn Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Fótbolti Fleiri fréttir „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ „Þeir hittu bara ógeðslega vel og við áttum bara engin svör“ Kristófer Acox: „Fokkin passion“ „Ákváðum að byrja fyrstu fimm mínúturnar í þriðja af krafti“ Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Oddaleikur í opinni dagskrá: Grindvíkingar taka á móti Keflvíkingum Oddaleikur í opinni dagskrá: Allt undir á Hlíðarenda Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Njarðvík 85-82 | Ótrúlegur endir skilaði Val í úrslit Íslandsmótsins Oddaleikur Vals og Njarðvíkur: Frákastakóngar liðanna skila mestu Oddaleikur Grindavíkur og Keflavíkur í kvöld: Basile og Kane á toppnum Svona verður oddaleikjaveislan á Stöð 2 Sport í kvöld „Þetta var rosalega heimsk villa hjá mér í endann“ Þruman jafnaði með góðum endaspretti og Boston einum sigri frá úrslitum Austursins „Auðvitað voru einhverjir villtir draumar um að fara í úrslitin“ „Við vorum ekki að fara að fá neitt gefins hérna“ Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Njarðvík 85-82 | Ótrúlegur endir skilaði Val í úrslit Íslandsmótsins