Craig: Baráttan skiptir meira máli en fegurðin Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 25. febrúar 2018 18:56 Craig á hliðarlínunni í dag vísir/bára
Craig Pedersen, landsliðsþjálfari Íslands, var ánægður með frammistöðu liðsins gegn Tékkum í Laugardalshöllinni í kvöld. Liðið hafði eins stigs sigur 76-75, eftir að hafa leitt nær allan leikinn. „Baráttan og viljastyrkurinn í liðinu var gríðarleg í dag. Í leik eins og þessum, og þessum á föstudaginn, þá getur það skipt sköpum og er mikilvægara en að leikurinn sé fallegur,“ sagði Craig eftir leikinn. „Við gerðum nóg til þess að ná í sigurinn í kvöld. Ég vildi óska að hann hefði verið aðeins þægilegri í lokin, en svona er þetta í íþróttum.“ „Ég var að vonast til þess að við næðum allavega að sækja á körfuna í lokin og komast á vítalínuna, en það gerðist ekki. Vörnin þeirra þéttist mjög mikið og við náðum ekki að komast almennilega að körfunni.“ „Á sama skapi fundu þeir lausnir hinu megin sem við réðum ekki við. Sem betur fer þá hittu þeir ekki úr vítaskotinu í lokin.“ Tryggvi Snær Hlinason kom inn í liðið í dag, en hann náði ekki til landsins fyrir leikinn gegn Finnum. Tryggvi átti sterka innkomu og var næst stigahæstur í íslenska liðinu með 15 stig ásamt því að hann var mikilvægur í vörninni. „Í þessum leik þá skipti hann miklu máli. Hann neyddi þá til að breyta sínum leik. Þetta er leikur þar sem við þurftum klárlega á honm að halda, annað en í leiknum á föstudaginn.“ „Hann stóð sig vel í dag og við sjáum framfarirnar frá því við sáum hann síðast og það var mjög mikilvægt að fá hann í liðið í dag.“ Sigurinn skiptir miklu máli í riðlinum, en Tékkland hafði ekki tapað leik til þessa. Ísland hélt sér í öðru sæti, jafnir á stigum og Finnar og einu stigi á eftir Tékkum. „Riðillinn er svo þéttur að þó svo sigurinn hafi hjálpað þá þurfum við virkilega á því að halda að vinna einn af síðustu tveimur leikjunum,“ sagði Craig Pedersen.
Körfubolti Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Enski boltinn Conor McGregor segist vera sá besti í sögunni og ætlar að sanna það Sport Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði Fótbolti Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Fótbolti Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Íslenski boltinn Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Fleiri fréttir Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Sjá meira