Innlent

48 leikskólar fullmannaðir

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Enn hefur ekki náðst að ráða starfsfólk í 21 stöðugildi í fjórtán skólum.
Enn hefur ekki náðst að ráða starfsfólk í 21 stöðugildi í fjórtán skólum. Vísir/Vilhelm
48 leikskólar af 62 á vegum Reykjavíkurborgar eru nú fullmannaðir. Enn hefur ekki náðst að ráða starfsfólk í 21 stöðugildi í fjórtán skólum. Þar af vantar tvo deildarstjóra og sjö leikskólakennara. Þetta kemur fram í frétt á vef Reykjavíkurborgar.

Þar segir að staðan sé betri en fyrir mánuði síðan þegar enn vantaði starfsfólk í 28 stöðugildi.

Þá segir að einnig hafi gengið vel að ráða nýtt starfsfólk í frístundastarf á vegum Reykjavíkurborgar. þar vantar nú starfsfólk í um tíu stöðugildi. Fyrir mánuði vantaði 56 starfsmenn á frístundaheimili og sértækar félagsmiðstöðvar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×