Einn árásarmannanna í París fyrir dóm í Belgíu Kjartan Kjartansson skrifar 5. febrúar 2018 10:08 Grímuklæddir lögreglumenn leiddu Abdeslam inn í dómsal og höfðu á honum góðar gætur. Vísir/AFP
Salah Abdeslam, eini árásarmaðurinn sem lifði hryðjuverkaárásina í París í nóvember árið 2015, kom fyrir dómara í Belgíu í dag. Hann neitaði að svara spurningum en málið varðar skotbardaga við lögreglu þegar hann var handtekinn í Brussel í mars 2016. Alls létust 130 í hryðjuverkaárásinni í París og þrjátíu og tveir til viðbótar í árás í Brussel nokkrum dögum síðar. Saksóknarar í Frakklandi telja að Abdeslam hafi leikið lykilhlutverk í árásunum. Að sögn breska ríkisútvarpsins BBC er ekki talið líklegt að réttað verði yfir honum í Frakklandi fyrr en árið 2020 í fyrsta lagi. Í málinu sem tekið var fyrir í dag er Abdeslam ákærður fyrir tilraun til morðs fjórum mánuðum eftir árásina í París. Abdeslam og tveir aðrir grunaðir menn földu sig í íbúð þegar lögreglumenn komu þangað við hefðbundna leit. Til skotbardaga kom þar sem þrír lögreglumenn særðust og einn grunuðu mannanna féll. Abdeslam var handtekinn nokkrum dögum síðar í Molenbeek-hverfi Brussel. Hann hefur neitað að ræða við rannsakendur síðan og hélt hann uppteknum hætti fyrir dómi í dag. Neitaði hann jafnframt að láta taka myndir eða myndbönd af sér í réttarsal. Búist er við því að réttarhöldin yfir Abdeslam taki fjóra daga. Um tvö hundruð vopnaðir lögreglumenn gæta dómshússins á meðan.
Hryðjuverk í París Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira