Sport

Öryggisverðir á Ólympíuleikunum ælandi og púandi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Öryggisverðirnir voru í miklum samskiptum við fólk og smithætta því mikil
Öryggisverðirnir voru í miklum samskiptum við fólk og smithætta því mikil Vísir/Getty
Það kom upp mikið vandræðaástand á Ólympíusvæðinu í Pyeongchang í Suður Kóreu þar sem vetrarólympíuleikarnir verða settir með viðhöfn á föstudaginn kemur.

Skipuleggjendur vetrarólympíuleikanna í Pyeongchang þurftu nefnilega að bregast hratt við því þegar grunur kom upp að Nóróveirusýking væri að ganga meðal hóps öryggisvarða á Ólympíusvæðinu.

Meira 1200 öryggisverðir voru fjarlægðir af Ólympíusvæðinu vegna þessa máls og í stað þeirra komu 900 hermann í suður-kóreska hernum. Þeir voru kallaðir til með litlum fyrirvara eftir að öryggisverðir voru teknir í burtu.

41 öryggisverðir voru með einkenni sem eru rakin til Nóróveirusýkingar. Einhverjir þeirra voru ælandi og púandi en aðrir í hópnum voru einnig með hita, magaverki og niðurgang. Nóróveiran er alveg bráðsmitandi.

Þeir sem voru veikir voru sendir á sjúkrahús en aðrir voru kyrrsettir í miðstöðinni. Þar þurfa þeir að vera þar til að engin fleiri tilfelli koma upp.





Öryggisverðirnir störfuðu aðallega við eftirlitsstörf á stöðum þar sem er sem gengið inn á Ólympíusvæðið og voru því að skoða töskur og aðra hluti sem fólk var að fara með inn á svæðið. Þeir voru því í beinum samskiptum við starfsfólk, fjölmiðlafólk og íþróttafólk á leikunum.

Ástæðan fyrir því að allir öryggisverðirnir voru kallaðir af svæðinu var hreinlega til að koma í veg fyrir faraldur. Það hefði getað endað skrautlega og mjög illa ef að öryggisverðirnir færu að smita keppnisfólkið. Ennþá er einhver hætta á því.  

Skipuleggendur Ólympíuleikanna munu vinna náið með miðstöð smitsjúkdóma í Suður-Kóreu til að koma í veg fyrir frekari smithættu eins og í því að sótthreinsa svæðið og vinnutæki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×