Sport

Hélt að boð um að keppa á Ólympíuleikunum væri ruslpóstur

Caroline Park á fullri ferð.
Caroline Park á fullri ferð. vísir/getty
Kanadískur læknanemi er í íshokkíliði sameinaðrar Kóreu sem keppir á Vetrarólympíuleikunum í PyeungChang en minnstu munaði að hún hefði aldrei þegið boð um að komast í liðið.

Caroline Park var einn af betri leikmönnum háskóladeildar kvenna í Bandaríkjunum en hún spilaði með Princeton þar sem hún gekk í skóla. Park er af kóresku bergi brotin en báðir foreldrar hennar eru frá Suður-Kóreu. Þau fluttust til Kanada áður en Park fæddist.

Árið 2013 fékk Park tölvupóst þar sem henni var boðið að koma á æfingar með Kóreuliðinu en hún var fljót að henda póstinum í ruslmöppuna.

„Ég hélt að þetta væri ruslpóstur (e. Spam). Mér datt ekki í hug að það væri einhver alvara á bakvið þetta. Það var ekki fyrr en síðar að ég heyrði af annarri stúlku sem spilar í Kanada var boðið og þá hugsaði ég nú að þetta gæti verið alvöru boð,“ segir Park í viðtali við BBC.

Park þáði á endanum boðið og var fljót að vinna sér inn sæti í liðinu enda frábær leikmaður sem fékk mörg einstaklingsverðlaun á 102 leikja ferli sínum með Princeton Tigers í bandarísku háskóladeildinni.

„Þetta verður frábær stund,“ segir Park sem hlakkar mikið til að spila með þessu sameinaða liði, en það er bara í íshokkí sem Kóreuþjóðirnar tvær leika saman.

„Við erum tólf leikmenn sem erum orðnir samherjar og það hefur bara verið frábært að hitta þessar stelpur, heyra sögur þeirra og spila smá íshokkí með þeim,“ segir Caroline Park.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×