Framkvæmdastjóri LÍN segir kröfur sjóðsins enn til staðar Birgir Olgeirsson skrifar 18. október 2018 17:35 Dómurinn náði aðeins yfir lán á tilteknum tímabili. Fréttablaðið/Valli
Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Lánasjóðs íslenskra námsmanna, segir fjárhagsleg áhrif nýfallins Hæstaréttardóms lítil sem engin. Þó svo að Hæstiréttur hafi fellt úr gildi sjálfskuldaábyrgð móður námsmanns, þá eigi sjóðurinn ennþá sína kröfu á námsmanninn. Framkvæmdastjórinn segir dóminn hafa fordæmisgildi fyrir ákveðið tímabil í útlánum sjóðsins. Um er að ræða frá miðju ári 2009 til nóvember 2013 þegar sjóðurinn ákvað að fara fram á ábyrgðarmann á lánum þeirra námsmanna sem voru á vanskilaskrá. Hæstiréttur mat það svo að það hefði verið ólöglegt þar sem sjóðurinn framkvæmdi ekki greiðslumat á lántakanum. Hrafnhildur bendir þó á að sjóðurinn hefði ávallt upplýst ábyrgðarmennina að lántakinn væri á vanskilaskrá. Um er að ræða prófmál en fimm dómarar dæmdu málinu og skilaði einn þeirra sératkvæði. Niðurstaða meirihluta Hæstaréttar er fordæmi í málum annarra lántaka hjá LÍN þar sem reynir á sjálfskuldarábyrgð við greiðslufall. Hrafnhildur segir þetta ekki verulegan skell fyrir LÍN því sjóðurinn á ennþá sínar kröfur á lántakendurna og þær hurfu ekki með dómi Hæstaréttar í dag. Hún segir óþarfa að breyta verklagi hjá sjóðnum því að dómurinn eigi aðeins við fjögurra ára tímabil og þetta sé ekki stundað í dag, það er að veita lán til þeirra sem eru vanskilaskrá gegn því að einhver gangist í ábyrgð fyrir lánið, án þess að framkvæma greiðslumat.
Tengdar fréttir Hæstiréttur ógilti sjálfskuldarábyrgð móður í prófmáli Hæstiréttur Íslands felld í dag úr gildi sjálfskuldarábyrgð móður vegna námslána dóttur hennar hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. 18. október 2018 15:50 Mest lesið Haft höggbor beint fyrir utan í hálft ár og kominn með nóg Innlent Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Innlent Thunberg meðal 500 handtekinna aðgerðasinna Erlent „Brotamenn eru nú ekki oft miklir borgunarmenn“ Innlent Söguðu gat á flugsafn til að stinga inn Boeing 757 Innlent Stímir óhrædd í gin ísraelska sjóhersins Innlent Tveir látnir og þrír alvarlega særðir eftir árás í Manchester Erlent Heimila gjaldtöku vegna fjarheilbrigðisþjónustu og útkalls án flutnings Innlent Demókrötum kennt um og uppsögnum hótað Erlent Hafði hvorki þekkingu né umboð til að tjá sig um fjármálin Innlent Fleiri fréttir Rúmlega þrjátíu skjálftar á Vesturlandi „Brotamenn eru nú ekki oft miklir borgunarmenn“ Heimila gjaldtöku vegna fjarheilbrigðisþjónustu og útkalls án flutnings Haft höggbor beint fyrir utan í hálft ár og kominn með nóg Stímir óhrædd í gin ísraelska sjóhersins Kom ráðherra á óvart að viðræðum hefði verið slitið Söguðu gat á flugsafn til að stinga inn Boeing 757 Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Gæti stefnt í þungavigtarslag um varaformannsembættið Atvinnuþátttaka innflytjenda meiri en Íslendinga en fjárhagsstaða verri Hafði hvorki þekkingu né umboð til að tjá sig um fjármálin Framsóknarflokkurinn mælist aftur inni Áttatíu starfsmenn í biðstöðu og HM-hópur Íslands Viðreisn býður fram undir eigin merkjum í Árborg Ekið á hjólreiðamann og hann fluttur á bráðamóttöku Val á þingflokksformanni bíður betri tíma Tvö vilja byggja Fossvogsbrú en bæði yfir áætluðum kostnaði Tálbeitan ákærð fyrir rangt brot Ekki sama manneskjan eftir hörmungarnar á Gasa Skorar á ríkisstjórnina að fjármagna íslenskunám Eggert Benedikt settur forstjóri Hafró Samtök „gamalla karla“ sem sumum finnst „kúl“ Rafmagnslaust á Dalvík, Hrísey og nágrenni Hætt við sameiningu HA og Háskólans á Bifröst Bjóða Grindvíkingum á seiglunámskeið Fimmtungur getur ekki keypt afmælisgjafir fyrir börnin sín Reyna að bjarga starfseminni á Möltu og slæmar fregnir af makrílveiðinni Bein útsending: Loftslagsdagurinn Bein útsending: Staða launafólks á Íslandi Létu sér andlát Hjörleifs í léttu rúmi liggja Sjá meira
Hæstiréttur ógilti sjálfskuldarábyrgð móður í prófmáli Hæstiréttur Íslands felld í dag úr gildi sjálfskuldarábyrgð móður vegna námslána dóttur hennar hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. 18. október 2018 15:50