Neyðarástandi lýst yfir í New York ríki Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 4. janúar 2018 19:45
Að minnsta kosti sautján hafa látið lífið í fimbulkulda og snjóbyl sem herjað hefur á austurströnd Bandaríkjanna í dag. Neyðarástandi var lýst yfir í New York ríki vegna mikillar snjókomu en þar mældist allt að tuttugu stiga frost. Óveðrið hefur náð alla leið til Flórída þar sem snjóaði á sumum svæðum í dag. Samgöngur eru víða í lamasessi og í New York hefur fólk verið hvatt til þess að reyna ekki að nota einkabíla ef það kemst hjá því. Alls þrjú þúsund og þrjú hundruð flugferðum hefur verið aflýst. Icelandair tilkynnti í dag að vegna stormviðvörunar á Austurströnd Ameríku yrði þremur flugum aflýst til Boston og New York í dag. WOW air frestaði einnig brottför á þremur flugum til sömu borga. Samkvæmt frétt New York Times voru skýli fyrir heimilislausa full og mörg fyrirtæki lokuðu vegna veðurs. Skólahald féll niður í New York, Baltimore, Boston, Philadelphiu, Washington og víðar. Snjómokstursbílar voru áberandi á götum margra borga í dag en búist er við því að veður fari versnandi á næstu dögum með áframhaldandi kulda og snjókomu.
Fréttir af flugi Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Veður Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Erlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Fleiri fréttir Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Sjá meira