Erum allar gullfallegar Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 24. febrúar 2018 09:00 Hún segir lífið vera betra þegar stelpur standi saman Ernir Eyjólfsson „
Ég er mjög ánægð með sjálfa mig og held að við höfum öll útlitið með okkur. Það er mikilvægt að samþykkja sjálfan sig eins og maður er til að geta blómstrað sem einstaklingur,“ segir Sunneva Eir Einarsdóttir, einn af vinsælustu áhrifavöldum Íslands. „Fjöldinn sem fylgist með mér truflar mig ekki; ég hef gaman af mínum fylgjendahóp. Ég vel það sem ég deili með þeim. Ég er enn sú sama og ég hef alltaf verið og ég hef sjálf ekkert breyst, en ég hef fengið fullt af frábærum tækifærum og kynnst ógrynni af góðu fólki.“Drottningar hjálpast að Sunneva er með ríflega 20 þúsund fylgjendur á Instagram og hátt í sextán þúsund á Snapchat. „Ég ætlaði mér aldrei að gera lífi mínu skil á samfélagsmiðlum; það bara gerðist og vatt hratt upp á sig. Það kom á óvart en ég nýt þess. Ég á æðislegan fylgjendahóp sem hefur vonandi gaman af efninu sem ég pósta og er þakklát fyrir alla sem fylgja mér eftir,“ segir Sunneva. Hún hafi aldrei átt sér drauma um frægð og frama.Sunneva Eir Einarsdóttir er einn af allra vinsælustu áhrifavöldum lýðveldisins. Henni liggur mest á hjarta að hafa góð áhrif á ungar konur. Ernir Eyjólfsson„Sem krakki dreymdi mig jú um að verða fræg söngkona en sá ferill hefði aldrei gengið upp þar sem ég er með skelfilega söngrödd,“ segir Sunneva og hlær. Hún segist meðvituð um ábyrgðina sem fylgi því að vera áhrifavaldur. „Að deila sínu daglega lífi með þúsundum áhorfenda fylgir sannarlega ábyrgð og ég reyni að hafa góð áhrif á alla. Ég sendi frá mér jákvæða orku og vona að fólk taki við henni. Ég vil hafa jákvæð áhrif á alla, en sérstaklega ungar stelpur. Ég vil að þær læri að elska hver aðra, en sér í lagi sjálfar sig. Lífið er mun betra þegar við stelpurnar stöndum saman. „Queens fix each others crowns.“.“Dreymir um að ferðast meiraSunneva fæddist í Reykjavík 7. ágúst 1996 og verður því 22 ára í sumar. „Móðir mín vildi velja mér nafn sem væri bjart og fagurt. Sunneva þýðir gjöf sólar og henni fannst nafnið hæfa mér vel en á þeim tíma vorum við fáar sem hétum Sunneva,“ segir sólskinsbarnið Sunneva um fyrirmynd sína og móður, Guðrúnu Helgu Harðardóttur. „Ég hef líka alltaf litið upp til stóru systur minnar, Rebekku Einarsdóttur, því hún er svo ótrúlega dugleg, metnaðarfull, falleg, flott og yndisleg manneskja.“ Á samfélagsmiðlum er helsta fyrirmynd Sunnevu Tammy Hembrow sem hún segir virðast vera með allt á hreinu og lifa draumalífi. „Að halda úti snappi getur verið annasamt en ég er ekkert of föst í því og snappa bara þegar ég vil. Ég starfa hins vegar við að sjá um samfélagsmiðla en framtíðarplönin eru að klára að mennta mig og fá mér vinnu sem ég er góð í og hef virkilega gaman af. Þegar ég var yngri dreymdi mig um að verða flugfreyja eða dýralæknir, og jafnvel hvort tveggja í einu, en í dag vonast ég til að finna mér vinnu sem tengist ferðalögum því ég elska að ferðast. Ef ég mætti breyta einhverju úr fortíðinni vildi ég óska að ég hefði ferðast miklu meira en ég hef þegar gert,“ segir Sunneva.Ekkert fegurri en aðrar konur Sunneva vekur hvarvetna athygli fyrir glæsileik, fegurð og flottan líkamsvöxt. „Ég hef gaman af því að stunda líkamsrækt og fer í ræktina fimm til sex sinnum í viku. Ég hef líka mikinn áhuga á förðun og tísku og fylgist vel með því nýjasta. Ég hef lítið fyrir því sem viðkemur útlitinu því ég hef gaman af öllu sem ég geri.“ Besta fegrunarráð Sunnevu er að hugsa vel um húðina, drekka mikið vatn og ástunda hreyfingu. „Mér líður alltaf best þegar ég hugsa vel um húðina og líkamann. Það er staðreynd að þegar manni líður vel og er í sátt við sjálfan sig er maður hvað fallegastur,“ segir Sunneva sem er ekki síður vel af Guði gerð þegar kemur að innri manni. „Ég hef skemmtilegt og jákvætt viðhorf til lífsins, er góð við alla og er mikill dýravinur.“ Sunneva kveðst ekki finna fyrir fordómum eða öfund annarra kvenna vegna útlits síns. „Nei, enda finnst mér ég ekki líta betur út en aðrar konur. Að mínu mati eiga konur ekki að bera sig saman við aðrar konur; við erum allar gullfallegar, hver á sinn hátt.“ Engin pressa sé að fara út úr húsi upp á sitt besta þótt hún sé rómuð fyrir glæsileika. „Alls ekki. Oftast fer ég ómáluð og í æfingafötunum út. En ég hef vissulega gaman af því að farða mig flott og klæða mig upp á, svo það er engin pressa. Mér þykir þó vænst um þegar fólk segir mig fyndna frekar en fallega, því ég er heilmikið fyndin. Það bara vita það ekki allir,“ segir hún og hlær.Snakkgrís og Star Wars-nörd Það er nammidagur hjá þorra landsmanna í dag en hjá Sunnevu eru allir dagar nammidagar. „Ég hef aldrei neitað mér um eitt né neitt þótt ég reyni að halda mínu striki á virkum dögum og fá mér snakk og gvakamóle um helgar. Ég er því meiri snakkgrís en nammigrís og dæmigert kósíkvöld hjá mér snýst um góða bíómynd, snakk og kúr,“ segir Sunneva sem er reglusöm að eðlisfari og þykir gott að fara snemma í bólið og taka daginn snemma. „Mér finnst mjög gott að byrja helgina á spinning, borða svo eitthvað mjög óhollt og hafa það kósí. Af og til kíki ég út á lífið og hef það skemmtilegt með vinkonunum, og þannig verður það um þessa helgi.“ Vísindaskáldskapur er eitt af helstu áhugamálum Sunnevu sem er mikill aðdáandi Star Wars, Lord of the Rings, Harrys Potter, Star Trek, Marvel, DC og Doctor Who. „Það gæti komið einhverjum á óvart að mamma kallaði mig nörd þegar ég var á mínu mesta Sci-Fi-tímabili en ég hef verið nörd síðan ég man eftir mér og finnst áhugamálið bara mjög eðlilegt,“ segir Sunneva og kímir.Best að vera maður sjálfur Sunneva á sína flestu fylgjendur á Instagram þar sem hún byrjaði að miðla myndum úr lífi sínu löngu áður en hún opnaði á Snapchat. „Ef ég mætti gefa ungum konum ráð, sem vilja feta sömu braut og ég á samfélagsmiðlum, væri það að vera alltaf þær sjálfar. Það skiptir öllu máli, og svo auðvitað góð lýsing!“ segir hún og skellir upp úr. „Þó að ég deili miklu úr eigin lífi gæti ég þess líka að eiga mitt eigið persónulega líf. Mín trú er sú að enginn sé alveg 100 prósent opinber á allt sitt. Maður verður að eiga sitt einkalíf,“ segir Sunneva og er reynslunni ríkari eftir að vera orðin einn af vinsælustu áhrifavöldum Íslands. „Áður var ég óskaplega feimin en samfélagsmiðlarnir hafa kennt mér að skríða út úr skelinni. Fyrir hálfu öðru ári hefði mér aldrei dottið í hug að ég yrði komin á þann stað sem ég er á í dag og ég er í raun og sann þakklát fyrir allt.“ Fylgstu með Sunnevu Eir á Instagram undir sunnevaeinarsd og á Snapchat undir sunnevaeinars.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Margir að þykjast: „Þessi feluleikur að þykjast vera kúl er svo algengur“ Áskorun „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Lífið Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Lífið Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Lífið Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Lífið Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Lífið Plokkað af krafti með forsetamaka Lífið „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið Íbúar furða sig á horfnu listaverki Menning Þjóðþekktir tónlistarmenn koma fram í heimahúsum Tónlist Fleiri fréttir Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bansi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Sjá meira