Ekta hressileika rugludalla gleðikeppni 27. febrúar 2017 10:00 Alban og Stefán á sínum sleða í fyrra. Myndir/Agnes Lebeaupin
Keppnin Mývatnssleðinn fer fram í fjórða sinn í mars á hinu fallega en umdeilda Mývatni. Vatnið og nágrenni hefur verið mikið á vörum fólks vegna alls konar skítamála að undanförnu. Keppnin hefur verið haldin á tveggja ára fresti frá 2011 en hún byrjaði sem létt grín þeirra félaga Stefáns Péturs Sólveigarsonar og Albans Schultz. Stefán er uppalinn í Mývatnssveit en býr í Reykjavík þar sem hann er starfar sem vöruhönnuður og flugþjónn. Hann heldur tengslum sínum við sveitina meðal annars með því að halda keppnina. „Fyrir mörgum árum byrjuðum við Alban að fara í ferðir í Mývatnssveit sem gengu út á það að fara í gangnamannakofa með alls konar gúmmelaði. Til að komast með allt góssið í kofann var auðveldast að smíða góðan sleða, því ekki áttum við vélsleða. Bæði fórum við tveir og líka með fleiri vinum. Í þessum ferðum kom oft fyrir að einhver partur af sleðanum bilaði eða brotnaði og við enduðum jafnvel á að nánast krafla okkur á nöglunum inn í kofann en þegar það loksins tókst þá urðu bæði matur og drykkur að bestu veigum og steikum sem við höfðum smakkað. Þegar við höfðum gert þetta í nokkur ár vorum við orðnir nokkuð góðir í að smíða sleða sem hægt var að draga yfir úfið hraun, hjarn og púður. Þá var bara kominn tími til að breyta til. Úr varð Mývatnssleðinn sem er með allt öðru formi,“ segir Stefán. Hvert lið er skipað tveimur keppendum sem hanna og smíða sleða sem hvorki má vera knúinn vélarafli né dreginn eða ýtt af dýri. Hönnunin er algjörlega frjáls að öðru leyti. Keppt er í stuttri hraðabraut þar sem liðin fara tvo hringi ein og sér. Í lengri braut þar sem liðin öll fara á sama tíma má trufla aðra keppendur upp að vissu marki en dómari getur dæmt stig af fyrir að fara yfir strikið í truflun. Keppnin fer fram á sama stað og stórmyndin Fast and the Furious 8 var tekin upp. Þá voru skriðdrekar og hraðskreiðir bílar á vatninu en sleðakeppendur munu væntanlega fara ögn hægar yfir. „Þetta er ekta hressileika rugludalla gleðikeppni. Fyrir okkur er jafn gaman dagana fyrir keppnina þegar hönnun og smíði fer fram,“ segir Stefán. benediktboas@365.is
Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira