Samkeppniseftirlitið hafnaði beiðni Markaðsráðs kindakjöts Kristinn Ingi Jónsson skrifar 4. ágúst 2017 06:00 Samkeppniseftirlitið hefur hafnað beiðni Markaðsráðs kindakjöts um undanþátu frá samkeppnislögum. vísir/valli
Markaðsráð kindakjöts hefur ekki sýnt fram á að skilyrði fyrir undanþágu frá samkeppnislögum séu uppfyllt vegna umsóknar ráðsins um leyfi til aukins samstarfs sláturleyfishafa við útflutning á kindakjöti. Þetta er mat Samkeppniseftirlitsins. Í bréfi sem Samkeppniseftirlitið hefur sent Markaðsráði gerir eftirlitið grein fyrir frummati sínu á umsókn ráðsins. Hafnar það umsókninni en býður þó ráðinu að leggja fram frekari gögn máli sínu til stuðnings. Svavar Halldórsson, framkvæmdastjóri Markaðsráðs kindakjöts, segir frummat Samkeppniseftirlitsins vera til skoðunar. „Við erum að taka saman yfirlit yfir þau opinberu gögn sem til eru, en við höfum ekki safnað saman öðrum gögnum, til dæmis um starfsemi sláturleyfishafanna, því við höfum ekki talið það heimilt. En við erum að skoða málið og höfum ekki tekið ákvörðun um næstu skref.“ Markaðsráðið óskaði eftir því við eftirlitið fyrr í sumar að því yrði veitt tímabundin undanþága frá samkeppnislögum vegna samstarfs sláturleyfishafa um útflutning og markaðssetningu á kindakjöti á erlendum mörkuðum. Í stað þess að útflutningur yrði á hendi hvers sláturleyfishafa var hugmyndin sú að fyrirtækin sneru bökum saman undir merkjum Markaðsráðs og stæðu saman að útflutningi. Taldi ráðið aukna samvinnu nauðsynlega til þess að takast á við þrengingar á útflutningsmörkuðum. Félag atvinnurekenda og Samtök verslunar og þjónustu voru á meðal þeirra sem lögðust gegn því að undanþágubeiðni Markaðsráðs yrði samþykkt.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Nálgist neyðarástand Innlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Innlent Fleiri fréttir Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Sjá meira