Bann eða lögleiðing fíkniefna, þriðja leiðin Einar Guðmundsson skrifar 4. maí 2017 07:00 Í umræðunni um fíkniefni eru yfirleitt einungis tveir valkostir ræddir. Í fyrsta lagi bann við fíkniefnum, sem er núverandi ástand í flestum löndum. Í öðru lagi lögleiðing fíkniefna, oftast að minnsta kosti til eigin brúks. Hér er verður bent á þriðju leiðina, en fyrst nokkur orð um birtingu vandans. Fíkniefni eru efni sem með tímanum skemma heilann og þá sérstaklega þá hluta heilans sem eru hvað nýjastir í þróun mannkynsins og hafa með mennskuna að gera. Þannig verður persónuleiki neytenda smátt og smátt frumstæðari og þeir háðir efnunum til að geta haldið sér gangandi. Að lokum verður einstaklingurinn svo sjálfmiðaður að lítill munur verður á honum og siðblindum einstaklingum. Glæpir verða því valkostur margra. Þekking á þessum vanda er eldri en vísindin og því hafa samfélögin fyrir löngu sett lög til að bjarga einstaklingunum frá sjálfum sér og samfélaginu frá einstaklingunum, þegar þeir eru orðnir skemmdir. Annar vandi sem herjar á samfélagið, og fíkniefnaneytendurna sjálfa, eru óbilgjörn glæpafélög, sem byggja í raun tilveru sína á ofbeldi af verstu gerð og hafa náð að skapa ótta og beita ofbeldi langt út fyrir raðir fíkniefnaneytenda. Þessir glæpahópar hafa setið einir árum saman að markaði sem veltir tugum milljarða árlega. Þannig hefur vöxtur þeirra verið gífurlegur og fórnarlömbum fjölgað eftir því. Saklaust fólk, s.s. gangandi vegfarendur, stjórnmálamenn, ættingjar neytenda, heilbrigðisstarfsfólk, lögreglumenn, fjölmiðlamenn, sjúkraflutningamenn og aðrir opinberir starfsmenn, allt eru þetta dæmi um fórnarlömb glæpahópa. Umfang ofbeldisins er slíkt að heilu samfélögin þora sums staðar ekki út úr húsi, nema yfir hábjartan daginn. Kvikmyndir frá Hollywood og víðar sýna okkur viðbjóðinn reglulega, en um leið verða kvikmyndirnar að kennslumyndböndum fyrir ofbeldismenn framtíðarinnar, eins og sjá má jafnvel hér á landi.Lögleiðing við sérstakar aðstæður Áðurnefnd „þriðja leið“ gengur út á að lögleiða fíkniefni, en eingöngu við sérstakar aðstæður. Markmiðið með þessari nálgun er aðallega tvíþætt. Í fyrsta lagi að hjálpa neytendum til að draga úr, eða hætta alveg neyslu. Opnaðar yrðu fíkni-móttökur reknar af hinu opinbera, mannaðar með heilbrigðisstarfsfólki, eða öðrum sem hafa menntun, og/eða innsýn í og reynslu af vanda fíkniefnaneytenda. Efnin yrðu framleidd af hinu opinbera og afhent ódýrt, eða jafnvel ókeypis, gegn vissum skilyrðum, svo sem skráningu, samtali við ráðgjafa, hvar má neyta þeirra, auk þess sem magnið verður takmarkað hverju sinni. Fíkniefnaneytandinn myndar væntanlega smám saman tengsl við starfsfólk móttökunnar og þá hjálp sem þar er að fá. Þegar hann er síðan tilbúinn fyrir frekari hjálp taka önnur meðferðarúrræði við, s.s. Vogur og LSH. Í öðru lagi myndi þessi nálgun draga úr og jafnvel stöðva samskipti fíklanna að mestu eða öllu leyti við fíkniefnasala og glæpahópa. Það mun síðan smám saman eyðileggja hinn gróðavænlega markað fíkniefnanna og þannig fjársvelta glæpasamtökin. Ungir fíklar sem hafa misst tökin á neyslu og eru komnir í fjárskuldir við glæpasamtök, yrðu ekki lengur neyddir til innbrota, vændis, eða annarra glæpa. Glæpasamtök myndu visna að innan vegna skorts á fé. Enginn annar markaður er sambærilegur að kostum fyrir glæpahópana, því þar sameinast í dag fórnarlömbin (fíklarnir) og glæpasamtökin í að auka umfangið stöðugt, og vegna fíknarinnar er eftirspurnin að mestu stöðug á hverju sem gengur. Fórnarlömbin eru háð glæpahópunum og vernda þá síðan gegn afskiptum lögreglunnar með því m.a. að þegja um starfsemina. Þessi þriðja leið er ekki að öllu leyti ný, því svipuð leið hefur þegar verið farin varðandi heróínfíkla, þ.e.a.s. heróínfíklar fá t.d. resept fyrir náskyldu efni, Metadón, sem var talið örlítið minna ávanabindandi og því léttara að losna úr viðjum þess en heróínsins sjálfs. Fíkillinn þarf að sjálfsögðu að eiga í samstarfi við heilbrigðisstarfsfólk til að fá efnið. Einnig má segja að þessi leið hafi að miklu leyti verið valin við afléttingu áfengisbannsins á bannárunum. Áfengi mátti selja og neyta, en aðeins á ákveðnum stöðum, og að fengnu leyfi yfirvalda. Það væri glapræði að lögleiða fíkniefni, en núverandi ástand er óásættanlegt og því er hér stungið upp á þriðju leiðinni, sem kalla má „Metadónaðferðina“ (The Metadone Method). Nákvæmari útfærslu aðferðarinnar er ekki hægt að gera skil í svo stuttri grein og bíður því betri tíma. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Er óverðtryggða lánið að ganga frá fjölskyldunni? Alma Björk Ástþórsdóttir Skoðun Er mörgum lesendum Vísis slétt sama um afkomu sína og velferð? Ole Anton Bieltvedt Skoðun Táknmyndir íslenska lýðveldisins Skoðun Tökum Viktor á þetta og enn lengra Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Núll prósent skynsemi Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn Skoðun Hvers eiga Vestfirðingar að gjalda? Ingólfur Ásgeirsson Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Táknmyndir íslenska lýðveldisins skrifar Skoðun Er óverðtryggða lánið að ganga frá fjölskyldunni? Alma Björk Ástþórsdóttir skrifar Skoðun Tökum Viktor á þetta og enn lengra Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Er mörgum lesendum Vísis slétt sama um afkomu sína og velferð? Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Til hamingju með daginn! Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Vetur að vori - stuðningur eftir óveður Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Skömm stjórnvalda - íslensk börn með erlendan bakgrunn Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Er þensla vegna íbúðauppbyggingar? Jónas Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Viðurkennum þjóðarmorð á Armenum Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Þegar kvíðinn tekur völdin Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Atvinnulífið og fíkniefnasalan Ólafur Kjartansson skrifar Skoðun Drasl Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Er lýðræðinu viðbjargandi? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Forsetapróf Auður Guðna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Aukin sala áfengis ógnar grundvallarmarkmiðum lýðheilsu Aðalsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Svik VG í jafnréttismálum Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun Ingólfur krítar liðugt Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Fáu spáð en vel fylgst með Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Armæða um íslenska tungu Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Það eru lög í landinu Líneik Anna Sævarsdóttir skrifar Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Úr buffi í klút Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar Skoðun Málsvari minksins Lárus Karl Arnbjarnarson skrifar Skoðun Skuldum við 17 þúsund íbúðir á höfuðborgarsvæðinu? Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Förum vel með byggingarvörur Eyþór Bjarki Sigurbjörnsson skrifar Sjá meira
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar
Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar
Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun