Stjórnarsáttmálinn sagður langur texti um lítið Jón Hákon Halldórsson skrifar 1. desember 2017 06:00 Formennirnir þrír þegar þeir kynntu sáttmálann í gær. vísir/eyþór
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Vinstri grænna, undir forsæti Katrínar Jakobsdóttur, er tekin við. Stjórnarsáttmáli var undirritaður í gær. Ekki eru þó allir hrifnir af stjórnarsáttmálanum og höfðu þeir stjórnarandstöðuleiðtogar sem Fréttablaðið ræddi við skiptar skoðanir á honum. Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.Vísir/Anton BrinkGagnrýnir forgangsröðun nýrrarstjórnar„Ég hef nú sjaldan séð svona langan texta um lítið,“ segir Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar. Logi telur mörg ágætis mál vera í stjórnarsáttmálanum, en hann einkennist mikið af því að menn ætli að skoða möguleika, leita leiða og hefja samráð. „En það sem mér finnst merkilegt er forgangsröðunin. Ég held að það segi beint að eitt af fyrstu verkum ríkisstjórnarinnar verði að bregðast við vanda sauðfjárbænda en síðan segir síðar í sama sáttmála að það verði að gera úttekt á kjörum tekjulægstu hópanna og barna í samfélaginu og grípa svo til aðgerða. Það er alveg ljóst að það eru vel þekktar aðgerðir sem væri hægt að ráðast í strax,“ segir Logi. Þar nefnir hann auknar vaxtabætur, hækkun barnabóta, meiri húsnæðisstuðning og skattkerfi sem leiði til jöfnunar. „Í staðinn eru einu skattkerfisbreytingarnar sem eru boðaðar lækkun á neðra þrepinu.“ Það séu sárafáir aurar fyrir þá sem lægstu launin hafa en miklu meira fyrir hina.Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.Vísir/ErnirFrjálslyndasta stjórn sögunnar að kveðja„Sú ríkisstjórn sem kvaddi í dag er að mínu mati frjálslyndasta ríkisstjórn lýðveldissögunnar. Núna er að taka við ríkisstjórn sem kemur öðruvísi að málum og það er ekkert óeðlilegt með þessa flokka,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar. Andrés Ingi Jónsson og Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmenn VG, hafa gagnrýnt sáttmálann fyrir það hve líkur hann er sáttmála fyrri stjórnar. Þorgerður er ósammála þessari skoðun þingmannanna. „Ég vil til dæmis draga það fram að umhverfiskafli síðustu ríkisstjórnar var mun ítarlegri en sá sem nú er. Það er enginn metnaður í alþjóðasamstarfi þessarar nýju ríkisstjórnar,“ segir hún. Þorgerður leggur áherslu á að ný ríkisstjórn fái tækifæri til að sanna sig án þess að allt sé dregið niður. „Það er margt fínt í stjórnarsáttmálanum sem hægt er að taka undir en annað sem vekur ákveðna furðu, þriðja að það eru ákveðnir þættir sem eru einfaldlega ekki nefndir.“Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.Vísir/AntonÓskar Katrínu til hamingju með áfangann „Í fyrsta lagi óska ég náttúrlega Katrínu Jakobsdóttur til hamingju með þennan áfanga. Þetta er mikill persónulegur áfangi fyrir hana að ná þessu saman,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. „ En hvað varðar stjórnarsáttmálann, þá varð ég fyrir verulegum vonbrigðum með það hvað hann er einhvern veginn gjörsamlega eins og spáð hafði verið fyrir um.“ Sigmundur segir mikla áherslu setta á alls konar starfshópa og umræðuhópa en á engan hátt sé verið að nýta þessi stóru einstöku tækifæri sem nú gefast en komi ekki aftur. „Ég er að tala um hluti eins og endurskipulagningu fjármálakerfisins, byggingu nýs Landspítala. Þarna á bara að festa gamla kerfið í sessi. Byggja áfram á Hringbraut og koma í veg fyrir möguleika á að endurskoða það. Varðandi fjármálakerfið þá virðist stefnan vera að hugsanlega móta stefnu á næsta ári eftir umræðu um einhverja hvítbók. Þetta er því allt í stíl við það sem maður óttaðist. Þetta verður kerfisstjórn.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Svandís stígur til hliðar Innlent Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Innlent Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Innlent Laufey Rún hætt störfum hjá Miðflokknum Innlent Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Erlent Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Innlent Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Innlent Fjöldi svæða á landinu sambandslaus með öllu Innlent Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Innlent Allt að helmingur barna heima vegna veikinda Innlent Fleiri fréttir Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Vill finna bróður sinn „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar endurnýjað Svandís stígur til hliðar Flugvél á leið til Egilsstaða snúið við yfir Hallormsstað Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Sigmundur Davíð og Kemi Badenoch meðal gesta í boði Meloni Keyptu ekki skýringar um neyðarvörn í Mjóddinni Bakkaði á ofsahraða með lyfjakokteil í blóðinu Laufey Rún hætt störfum hjá Miðflokknum Sanna býður sig fram undir merkjum Vors til vinstri Styggur svanur í sundi handsamaður og skilað í næstu tjörn Viðreisn stundi hræðsluáróður í stað þess að ræða málin Inflúensan á uppleið og seinni bylgjan handan við hornið Flensan á flugi og Sundlaugarmenningunni fagnað í Vesturbæjarlauginni Játaði en áfrýjaði samt og krafðist sýknu Páll Winkel meðal umsækjenda um embætti ráðuneytisstjóra Vilja takmarka fjölda barna sem getin eru með sama sæði Fjöldi svæða á landinu sambandslaus með öllu Fjölskyldur fórnarlamba krefjast ábyrgðar Sádi-Arabíu Staðsetning Íslands „hernaðarlega mjög mikilvæg“ Fjögur ár fyrir smygl á rúmum fjórum kílóum af kókaíni 325 milljónir í næsta áfanga LED-ljósavæðingar í Reykjavík Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Sjá meira