Einn lést er farþegar köstuðust úr tæki á skemmtun í Ohio Kristín Ólafsdóttir skrifar 27. júlí 2017 06:42 Farþegum sem setjast í tækið er sveiflað fram og til baka auk þess sem þeir snúast í hringi á miklum hraða. Vísir/Getty
Einn er látinn og nokkrir særðir eftir að slys varð í tæki á skemmtun í Ohio-ríki í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Fólk, sem sótt hafði skemmtunina, kastaðist úr tækinu með þeim afleðingum að einn lést og sjö særðust. Ástand þriggja hinna særðu er sagt alvarlegt, að því er segir í frétt Breska ríkisútvarpsins. Ríkisstjóri Ohio, John Kasich, staðfesti við fjölmiðla að einn hefði látið lífið en hann fyrirskipaði að öllum tækjum á skemmtuninni, sem er afar fjölsótt á ári hverju, yrði lokað þangað til að frekari skoðanir á þeim færu fram. Svokallaðar „ríkisskemmtanir“ (State fair) eru haldnar víða í Bandaríkjunum. Þar kemur iðulega fjöldi fólks saman og hlýðir á tónlist, gæðir sér á alls kyns mat og fer ferðir í tækjum. Tækið sem olli slysinu er kallað „Eldhnöttur“ (Fireball) en því svipar til pendúls. Farþegum sem setjast í tækið er sveiflað fram og til baka auk þess sem þeir snúast í hringi á miklum hraða. Læknir á svæðinu sagði fórnarlömbin hafa kastast úr tækinu og skollið í jörðina í töluverðri fjarlægð frá upphafspunkti. Einn hinna særðu er talinn vera 13 ára og þá hafa fjölmiðlar á svæðinu flutt fréttir af því að hinn látni hafi verið 18 ára. Samkvæmt frétt The Columbus Dispatch höfðu allt að þrjár til fjórar öryggisskoðanir verið gerðar á tækinu fyrr í þessari viku.Hér að neðan má sjá umfjöllun á vegum AP-fréttaveitunnar um slysið en í því eru myndir og myndbönd frá vettvangi.
Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Endurskoða samning SÁÁ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Banna búrkur og níkab Erlent Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða Innlent Fleiri fréttir Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Sjá meira