Hlutur ríkisins gæti orðið margfalt hærri en grunnkaupverð Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 24. apríl 2017 18:23 Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra og Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar. Vísir/Stefán
Ef skipulagi á landi Vífilsstaða verður breytt á næstu árum, byggingarmagn aukið eða nýtingu svæðanna breytt fær ríkissjóður verulegan hlut af verðmæti byggingarréttar á svæðinu umfram metið grunnkaupverð. Þetta segir í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu. Þá gæti hlutur ríkisins í söluverðinu orðið margfalt hærri en grunnkaupverð landsins, verði skipulagi breytt verulega. Ríkissjóður gerði á dögunum samning við Garðabæ um sölu á jörðinni Vífilsstöðum fyrir 560 milljónir króna auk þess sem ríkissjóður á rétt á 60% hlutdeild í ábata af sölu byggingarréttar á svæðinu sem fer umfram það sem gert var ráð fyrir við verðmat á landinu. Greint var frá því gær að Sigurður Ingi Jóhannesson, þingmaður Framsóknarflokksins, hefði óskað eftir sérstakri umræðu á Alþingi um sölu ríkisins á landi Vífilsstaða til Garðabæjar. Benti hann á að núvirði lóðarinnar sé ívið meira en kaupsamningur ríkisins við Garðabæ hafi kveðið á um og skaut föstum skotum á Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra. Benedikt segir söluna þó vera hið besta mál og í frétt fjármálaráðuneytisins segir að Garðabær hafi um langt skeið átt í viðræðum við Ráðuneytið um kaup á landinu.Tilkynning fjármálaráðuneytisins:Vegna sölu ríkisins á jörðinni VífilsstöðumRíkissjóður gerði á dögunum samning við Garðabæ um sölu á jörðinni Vífilsstöðum fyrir 560 m.kr. auk þess sem ríkissjóður á rétt á 60% hlutdeild í ábata af sölu byggingarréttar á svæðinu, sem fer umfram það sem gert var ráð fyrir við verðmat á landinu.Samningurinn um ábataskipti gildir til 40 ára.Garðabær hefur um langt skeið átt í viðræðum við ráðuneytið um kaup á u.þ.b. 200 ha. lands sem eftir standa af jörðinni. Viðræður um kaupin voru endurnýjaðar á síðasta ári.Oft hefur reynst erfitt að ákvarða verðmæti slíkra landssvæða því almennt hafa þessi svæði ríkisins annað hvort ekki verið skipulögð undir sérstök not, eru skipulögð sem útivistarsvæði eða eru skilgreind sem stofnanasvæði. Þegar viðræður um landið fóru fram lágu fyrir aðalskipulagsdrög af hálfu sveitarfélagsins sem gerðu ráð fyrir tiltekinni og afmarkaðri nýtingu á landinu. Það var samkomulag ríkis og sveitarfélags að fá tvo óháða og sérhæfða matsmenn til að vinna verðmat á landinu út frá umræddum aðalskipulagsdrögum. Matsmennirnir voru Stefán Gunnar Thors, sviðsstjóri Umhverfis og skipulags hjá VSÓ Ráðgjöf sem var tilnefndur af ríkinu og Jón Guðmundsson, löggiltur fasteignasali hjá Fasteignamarkaðnum ehf., tilnefndur af Garðabæ.Matsmennirnir náðu samkomulagi um sameiginlegt verðmat og var það lagt óbreytt til grundvallar við sölu landsins.Við matið var gengið út frá því að auk grunnverðs jarðarinnar yrði gert ráð fyrir ábataskiptingu seljanda og kaupanda verði nýting svæðanna aukin umfram fyrirliggjandi tillögu að aðalskipulagi. Sú aðferðarfræði byggist á því að búa til sameiginlega hvata þannig að bæði ríki og hlutaðeigandi sveitarfélög hafi hagsmuni af því að uppbygging og skipulag seldra svæða sé hagkvæm og nýting góð.Verði byggingarmagn aukið á gildistíma samnings fær ríkið í sinn hlut 60% af söluverði byggingarréttar umfram hefðbundin gatnagerðargjöld, en sveitarfélagið 40%. Hlutur sveitarfélagsins þarf hins vegar að standa undir allri vinnu við aðal- og deiliskipulags landsins, kostnað við sölu og úthlutun lóða og öllum öðrum kostnaði við að koma landinu í not.Ljóst er að ef skipulagi verður breytt á næstu áratugum og byggingarmagn aukið eða nýtingu svæðanna breytt fær ríkissjóður verulegan hlut af verðmæti byggingarréttar á svæðinu umfram metið grunnkaupverð. Gæti hlutur ríkisins í söluverði byggingarréttar orðið margfalt hærri en grunnkaupverð landsins, verði skipulagi breytt verulega. Slíkar ákvarðanir eru hins vegar á forræðis sveitarfélagsins sem hefur með höndum skipulagsvald innan marka þess.
Tengdar fréttir Samningur um kaup Garðabæjar á jörðinni Vífilsstöðum undirritaður Kaupverðið er tæpar 560 milljónir króna. 19. apríl 2017 21:30 Forstjóri Landspítalans ósáttur við að Garðabær fái Vífilsstaði Forstjóri Landspítala háskólasjúkrahúss er afar ósáttur við þær málalyktir að land Vífilsstaða skyldi selt Garðabæ. 20. apríl 2017 07:00 Hugnaðist ekki að selja bröskurum landið eins og „einhverjir aðrir stjórnmálamenn“ Fjármálaráðherrann Benedikt Jóhannesson segir það skjóta skökku við að Sigurður Ingi Jóhannesson, formaður Framsóknarflokksins, skuli nú stíga fram og gagnrýna söluna á Vífilsstaðalandinu sem hann hafi sjálfur "margoft“ veitt heimild fyrir. 23. apríl 2017 22:35 Óskar eftir sérstökum umræðum um Vífilsstaði: "Enn og aftur finnst ráðherra þingið bara vera fyrir“ Sigurður Ingi Jóhannesson, segir að þingið eigi enn efitr að ræða um Vífilsstaðalandið sem staðsetningu fyrir þjóðarsjúkrahús og sölu ríkisins á því. 23. apríl 2017 16:24 Mest lesið Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Innlent Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Friðarsamkomulag verði undirritað á morgun Erlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Límdu efnin á fætur sína Innlent Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Innlent Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Fleiri fréttir Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Límdu efnin á fætur sína Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Sjá meira
Samningur um kaup Garðabæjar á jörðinni Vífilsstöðum undirritaður Kaupverðið er tæpar 560 milljónir króna. 19. apríl 2017 21:30
Forstjóri Landspítalans ósáttur við að Garðabær fái Vífilsstaði Forstjóri Landspítala háskólasjúkrahúss er afar ósáttur við þær málalyktir að land Vífilsstaða skyldi selt Garðabæ. 20. apríl 2017 07:00
Hugnaðist ekki að selja bröskurum landið eins og „einhverjir aðrir stjórnmálamenn“ Fjármálaráðherrann Benedikt Jóhannesson segir það skjóta skökku við að Sigurður Ingi Jóhannesson, formaður Framsóknarflokksins, skuli nú stíga fram og gagnrýna söluna á Vífilsstaðalandinu sem hann hafi sjálfur "margoft“ veitt heimild fyrir. 23. apríl 2017 22:35
Óskar eftir sérstökum umræðum um Vífilsstaði: "Enn og aftur finnst ráðherra þingið bara vera fyrir“ Sigurður Ingi Jóhannesson, segir að þingið eigi enn efitr að ræða um Vífilsstaðalandið sem staðsetningu fyrir þjóðarsjúkrahús og sölu ríkisins á því. 23. apríl 2017 16:24