
Haustspá Siggu Kling komin á Vísi!

Sigga leggur leggja áherslu á að fólk geri það besta úr því sem það les, nýta sér orkuna, klappa sér á bakið og elska lífið. Spárnar einkennast af gleði, krafti, orku og jákvæðni en það eru skilaboðin sem hún vill senda til samfélagsins.
Sigga Kling verður í beinni sjónvarpsútsendingu á Vísi klukkan 14:00 í dag og geta lesendur sent inn spurningar í athugasemdarkerfinu hér að neðan. Hægt verður að spyrja Siggu um allt á milli himins og jarðar.
Sigga býður upp á þjónustunámskeið fyrir fyrirtæki af öllum toga: Hópefli – hressingarfyrirlestur sem getur verið hentugur í hádegishlé eða í byrjun vinnudags. Einnig tekur hún að sér hópa sem vilja eiga jákvæða og gleðilega kvöldstund. Þeir sem hafa áhuga gefa haft samband við Siggu með því að senda tölvupóst á siggakling@gmail.com
Tengdar fréttir

Haustspá Siggu Kling - Sporðdrekinn: Þú þolir illa ofsagang og læti
Elsku Sporðdrekinn minn, þó þér finnist þú sjá líf þitt á næstu mánuðum í þoku þá er það akkúrat sá tími sem gefur þér mesta kraftinn til að hugsa og framkvæma rétta hluti. Hin venjulega íslenska þoka kyrrir hugann og sameinar orkuna í fólki.

Haustspá Siggu Kling - Vogin: Þú ferð að leita að fyllingu í hjarta þínu
Elsku Vogin mín. Þó að það sé svolítil ókyrrð í hjarta þínu og tilfinningunum þá er orkan í kringum þig og lífið alveg með besta móti.

Haustspá Siggu Kling - Meyjan: Skalt alls ekki sýna óöryggi eða undirgefni
Elsku magnaða Meyjan mín, mikið er ég þakklát fyrir að þú sért til, það ert þú sem svo sannarlega skrifar söguna fyrir okkur.

Haustspá Siggu Kling - Ljónið: Þér lífsnauðsynlegt að tengja áhugamál þín við vinnuna
Elsku Ljónið mitt. Þegar þú ert í essinu þínu og skjallar og hrósar fólkinu þínu er enginn eins fagur og þú.

Haustspá Siggu Kling - Fiskurinn: Það er í þínu eðli að vera í sambandi
Elsku Fiskurinn minn, það er svo ríkt í eðli þínu að vera veislustjóri alveg sama í hvaða partíi þú ert. Sumir kalla það stjórnsemi en það er þér í blóð borið að redda og bjarga svo allt gangi vel, helst hjá öllum.

Haustspá Siggu Kling - Vatnsberinn: Þið þurfið sjálf að sækja ykkar réttindi
Elsku Vatnsberinn minn, þú ert svo heillandi og heitur að jöklar gætu bráðnað í návist þinni. Þú hefur svo stóran faðm og svo mikla umhyggju fyrir lífinu og tilverunni, þetta er það sem gerir þig svo dásamlega einstakan.

Haustspá Siggu Kling - Hrúturinn: Bæði hæfileikaríkur og gáfaður og í ástamálunum
Elsku Hrúturinn minn. Þú átt svo marga aðdáendur sem líta upp til þín, dýrka þig og dá enda átt þú það til að vera svo ofsalega ákafur eins og nýfætt hrútslamb og hressa hvaða fýlupoka sem er við.

Haustspá Siggu Kling - Steingeitin: Þarft að verðleggja þig miklu hærra
Elsku Steingeitin mín, þú ert fædd til að ganga hamingjusaman veg en flækir þig svo oft í viðhorfum til lífsins og þú treystir fáum þó þú eigir stóran vinahóp.

Haustspá Siggu Kling - Tvíburinn: Þú ert að bíða eftir tækifæri
Elsku Tvíburinn minn. Þú ert svo klár og ástríðufullur og getur verið með mörg verkefni á sama tíma. Margir færu í "burnout“ eða kulnun við svoleiðis aðstæður. En þú býrð yfir krafti á við bestu þotur WOWair, mundu þó að það sem knýr þoturnar áfram er einfaldlega eldsneyti.

Haustspá Siggu Kling - Krabbinn: Þú ert sú týpan sem vilt borga borðið
Elsku fallegi Krabbinn minn, þetta er búið að vera merkilegt sumar sem hefur gefið þér sjálfstraust á svo marga vegu.

Haustspá Siggu Kling - Nautið: Þakkaðu fyrir erfiðleikana sem þú hefur lent
Elsku Nautið mitt. Það má sannarlega segja að þú sért hafið yfir fjöldann en þú verður að muna að mont og stolt eru systur. Þú þarft þess vegna að æfa þig meira að vera montið með þig eins og þú ert með fjölskyldu þína og vini.

Haustspá Siggu Kling - Bogmaðurinn: Ert í eðli þínu ævintýramanneskja
Elsku Bogmaðurinn minn, það er svo sterkt í eðli þínu að vera með fullkomnunaráráttu og orðið fullkomnunarárátta er afskaplega leiðinlegt orð. En þetta er bara vegna þess að þú vilt gera allt svo vel, stundum of vel.