Landsliðsmarkvörður Króata verður samherji Stefáns Rafns Tómas Þór Þórðarson skrifar 29. nóvember 2017 23:00 Mirko Alilovic fer frá meisturunum til hins árlega silfurliðs. vísir/getty
Mirko Alilovic, landsliðsmarkvörður Króatíu í handbolta, yfirgefur ungverska stórliðið Veszprém næsta sumar og gengur í raðir næst stærsta liðsins þar í landi, Pick Szeged. Alilovic, sem Íslendingar hafa alltof oft séð loka markinu á móti strákunum okkar í landsleikjum, hefur varið mark Veszprém síðan 2011 og orðið ungverskur meistari á hverju ári síðan hann kom til liðsins. Hann fór með Veszprém í úrslitaleik Meistaradeildarinnar ásamt Aroni Pálmarssyni árin 2015 og 2016 og þá hefur hann átt góðu gengi að fagna með króatíska landsliðinu frá því hann hóf að verja mark þess fyrir tíu árum síðan. Þessi 32 ára gamli markvörður fær aftur Íslending sem samherja en Stefán Rafn Sigurmannsson gekk í raðir Pick Szeged í sumar. Veszprém er búið að ganga frá samningi við arftaka Alilovic en einn allra besti markvörður heims, spænski Serbinn Arpad Sterbik, snýr aftur til meistaranna frá RK Vardar í sumar. Sterbik, sem er fæddur í Júgóslavíu en fékk spænskan ríkisborgararétt árið 2008, hefur um árabil verið einn af þeim allra bestu, ef ekki hreinlega sá besti, en hann varð heimsmeistari með Spáni árið 2013 og vann Meistaradeildina með Vardar í vor. Sterbik, sem er 38 ára gamall, hefur á sínum glæsta ferli með Veszprém, Ciudad Real, Atlético Madrid, Barcelona og Vardar unnið ótal titla og spilað tæplega 100 landsleiki fyrir Spán.
Handbolti Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Sjá meira