Ólöf lést í gær, fimmtug að aldri, eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Hún lætur eftir sig eiginmann og fjögur börn, en farið var stuttlega yfir ævi Ólafar, líkt og sjá má í spilaranum hér fyrir neðan.
Ólöf var vinsæl innan Sjálfstæðisflokksins og raunar þvert á flokkslínur. Hún naut afgerandi trausts og hlaut yfirburðarkosningu þegar hún bauð sig fram til embættis innan síns flokks og í prófkjörum hans. Hún var kjörin varaformaður Sjálfstæðisflokksins á landsfundi 2010 og gegndi því embætti til 2013. Hún bauð sig síðan aftur fram í varaformannsembættið á landsfundi árið 2015 og gegndi því allt til dauðadags.
Ólafar var minnst á Alþingi í dag og þá minntust vinir og samstarfsmenn hennar með margvíslegum hætti.
„Sú sorgarfregn barst okkur í gær að Ólöf Nordal, alþingismaður og fyrrverandi ráðherra, hefði andast um morguninn á sjúkrahúsi hér í borg. Fregnin var óvænt og þungbær þótt við vissum öll að Ólöf hefði um nokkurt skeið átt við erfið veikindi að stríða. Aðeins fimmtug að aldri er þessi glæsilega kona, sem hvarvetna bar ljós og gleði, hrifin á brott,“ sagði Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis, á þingi í dag.
Nærmynd af Ólöfu Nordal í spilaranum hér fyrir neðan.