Bjarni: "Stjórnarandstaðan gaf frá sér formennsku í þremur nefndum“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 25. janúar 2017 19:06 Bjarni Benediktsson forsætisráðherra. vísir/ernir
Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, segir að stjórnarandstaðan hafi gefið frá sér formennsku í þremur nefndum Alþingis, einfaldlega vegna þess að hún hafi ekki getað komið sér saman um hvað ætti að falla í hlut hvers. Þetta kemur fram á Facebook síðu Bjarna.Sjá einnig: Nefndarformennskur allar í skaut stjórnarflokkannaÁður hafði Svandís Svavarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri-grænna gagnrýnt stjórnarflokkanna harðlega en hún sagði þá hafa boðið formennsku í nefndunum til ákveðinna einstaklinga, en ekki flokka. Bjarni segir að gengið hafi verið út frá því að stjórnarandstaðan myndi stýra tveimur nefndum, þeim sömu og stjórnarandstaðan stýrði á síðasta kjörtímabili, það er stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og velferðarnefnd. Bjarni bendir á að stjórnarandstaðan hafi viljað ná samkomulagi um þriðju nefndina sem og fyrstu varaformennsku í nefndum. Að sögn Bjarna lá fyrir að nefndunum tveimur yrði stýrt af tveimur stærstu flokkunum í stjórnarandstöðunni, Vinstri-grænum og Pírötum og ef samið yrði um þriðju formennsku stjórnarandstöðuflokks, yrði það til að tyrggja að Framsóknarflokkurinn færi fyrir einni nefnd sem þriðji stærsti flokkurinn. Samkvæmt Bjarna þróuðust samtöl þannig að Framsóknarflokkurinn sóttist eftir formennsku í efnahags- og viðskiptanefnd og var það samþykkt af hálfu stjórnarflokkanna. Í færslu sinni segir Bjarni að þessu hafi hins vegar verið snúið á haus með því að láta líta út fyrir að stjórnarflokkarnir hafi viljað hafa áhrif á val stjórnarandstöðunnar með því að fallast á bón Framsóknarflokksins um foyrstu í efnahags- og viðskiptanefnd. „Það væri nær að skrifa frétt um að stjórnarandstaðan hafi gefið frá sér formennsku í þremur nefndum því hún gat ekki komið sér saman um hvað ætti að falla í hvers hlut. Getur verið að Píratar hafi ekki getað unnt Framsóknarflokknum þess að leiða mikilvæga nefnd og hafi frekar viljað kasta öllu frá sér til að koma þeirri sögu á kreik að stjórnin hafi ekkert boðið?“
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira