Hrossin vitlaus í jólatré Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 22. janúar 2017 19:35
Janúar er í miklu uppáhaldi hjá hestunum Fjörva, Diljá og Glóð, því þá fá þeir jólatré til að éta og naga. Eigandi hrossanna segir greinilega eitthvað efni í trjánum sem hestarnir eru vitlausir í. Ásta Ólafsdóttir og Sigurður Einarssonar eru með nokkur hross í hesthúsahverfinu á Selfossi en áður en þau fluttu á staðinn voru þau með búskap í Skúfslæk í Flóa. Hestarnir þrír eru alltaf spenntir að komast út í gerði því þar vita þeir af nokkrum jólatrjám sem Ásta færir þeim. „Manni fannst þetta voðalega furðulegt fyrst en svo kom í ljós að hestarnir hafa alveg þvílíka ánægju af þessu. Þeir leika sér með þetta, þeir bera þetta á milli sín og svo naga þeir greinar af þessu. Það er greinilega eitthvað efni í þessu sem að þeir sækjast í,“ segir Ásta Ólafsdóttir. „Þá hafa þau miklu meiri hreyfingu og þau hafa meiri félagsskap og hafa það miklu skemmtilegra,“ bætir Ásta við.En eru þau að éta barrið líka?„Ég veit eiginlega ekki hvað verður um það, hvort þau sækist í barrið eða hvort það eru greinarnar.“ Það styttist óðum í að Ásta verði áttræð. Hún fer mikið á hestbak og alltaf í hestaferðir á sumrin. Hesturinn hennar er Fjörvi, 17 vetra. „Ég held að það sé nánast ekki til betri hestur en þessi. Hann passar mig og við getum bara gert allt það sem okkur dettur í hug saman. Hann er svo þægur en hann er líka svo góður við lítil börn. Barnabarnið mitt er á honum, við þurfum ekki einu sinni að líta á hana hérna inni. Við setjum hana bara á bakið á honum inni í stíu. Svona hestar eru ákafleg vandfundnir,“ segir Ásta Hún segir að það sé gaman að stússast í hrossunum sínum hérna á Selfossi og hvað þá að komast á hestbak á góðum hesti. „Það er gaman að fara á bak og betri félaga er ekki hægt að eiga.“ Viðtalið við Ástu og furðulegt atferli hestanna má sjá í spilaranum hér að ofan.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira