Sjö af hverjum tíu á móti áfengisfrumvarpinu Atli Ísleifsson skrifar 18. maí 2017 12:48 Ekkert verður af því að leyft verði að selja vín í matvörubúðum á þessu þingi að minnsta kosti. vísir/stefán
Nærri sjö af hverjum tíu Íslendingum eru mótfallnir frumvarpi sem nú liggur fyrir Alþingi um að heimila sölu á áfengi í verslunum. Þetta er niðurstaða rannsóknar Rúnars Vilhjálmssonar, félagsfræðiprófessors við Háskóla Íslands, en BSRB hefur styrkt gerð rannsóknarinnar sem unnin var með Félagsfræðistofnun Háskóla Íslands. Í tilkynningu frá BSRB kemur fram að alls séu 69,2 prósent landsmanna andvíg því að frumvarpið verði að lögum en 30,8 prósent eru því fylgjandi. Spurt var: Hver er afstaða þín til frumvarps sem nú liggur fyrir Alþingi um að heimila sölu á áfengi í verslunum?„Andstaða við frumvarpið er mest meðal stuðningsmanna Vinstri grænna, 88,8%, Samfylkingarinnar, 82,6%, og Framsóknarflokksins, 77,8%, en meirihluti stuðningsmanna allra flokka er andvígur frumvarpinu. Þannig eru 54,4% stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins á móti frumvarpinu, 54,8% stuðningsmanna Viðreisnar og 56,8% þeirra sem styðja Bjarta framtíð. Þá eru 58,4% stuðningsmanna Pírata andvígir því að frumvarpið verði að lögum. Marktækur munur er á afstöðu kynjanna til frumvarpsins. Þannig eru nærri fjórar af hverjum fimm konum, 77,8%, andvígar frumvarpinu, en um þrír af hverjum fimm körlum, 60,6%. Þegar afstaða landsmanna til frumvarpsins er skoðuð eftir aldri má sjá að meirihlutinn er andvígur frumvarpinu í öllum aldurshópum öðrum en þeim yngsta. Andstaðan eykst með hækkandi aldri. Aðeins hjá þeim sem eru 18 til 29 ára er naumur meirihluti fylgjandi frumvarpinu, alls 53,7%. Andstaðan við frumvarpið er meiri á landsbyggðinni, þar sem 74% eru því mótfallnir, en á höfuðborgarsvæðinu, þar sem 66,5% eru andvígir þeirri breytingu sem boðuð er í frumvarpinu,“ segir í tilkynningunni en nánar má lesa um rannsóknina á vef BSRB. Ljóst er að ekkert verður af því að leyft verði að selja vín í matvörubúðum á þessu þingi að minnsta kosti.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira