Heimagerðar jólagjafir með Jólaprjóni 25. október 2017 11:30 Guðrún nýtur þess að prjóna eins og bækur hennar hafa sýnt. Þær hafa notið mikilla vinsælda. MYND/ANTON BRINK
KYNNING Guðrún S. Magnúsdóttir er að senda frá sér bókina Jólaprjón sem hefur að geyma sjötíu einfaldar og fallegar uppskriftir handa jólabörnum. Í bókinni eru prjónaðir jólasokkar, jólavettlingar, jólahúfur og jólaskraut. Þetta er sjötta prjónabók Guðrúnar sem starfaði lengi sem kennari, fyrst í handmennt en síðar í bóklegum fögum með yngstu kynslóðinni, meðal annars í Ísaksskóla. Áður hafa komið út bækurnar Sokkaprjón, Húfuprjón, Vettlingaprjón, Treflaprjón og Teppaprjón. Allar bækurnar hafa notið mikilla vinsælda enda hefur alls kyns prjón aukist mikið hér á landi. Guðrún segir að það hafi verið barnabörnin sem hafi kveikt áhuga hennar að gera Jólaprjón. „Ég prjónaði jólasokka handa barnabörnunum til að hengja upp sem vöktu mikla lukku. Ég á ellefu barnabörn og sokkarnir voru allir mismunandi. Þegar ég var búin að gera þessa ellefu sokka átti ég margar hugmyndir eftir svo ég hélt bara áfram. Það endaði með því að úr varð bók,“ segir hún. Guðrún segir að bókin sé að koma í verslanir. Það ætti því að vera nægur tími til að prjóna jólagjafir eftir uppskriftum hennar. „Þetta eru aðgengilegar en miserfiðar uppskriftir,“ segir hún. „Það eru 42 uppskriftir af sokkum í bókinni, einnig eru jólavettlingar, jólahúfur og tólf útfærslur af jólaskrauti, meðal annars jólasveinar, snjókarlar, mörgæsir, englar, bangsi, hreindýr og fleira,“ segir Guðrún en íslenskt jólaprjón hefur aldrei áður komið út í bók. „Allar grunnuppskriftir af jólaskrauti í bókinni eru byggðar upp á þríhyrningsformi.“Bókin hefur að geyma margvíslegar fallegar uppskriftir.Sjálf hefur Guðrún prjónað frá því hún var stelpa. „Ég sit alltaf með prjóna eða heklnál og hef mjög gaman af handavinnu. Mér finnst fátt yndislegra en að prjóna nema að vera með barnabörnunum,“ segir höfundurinn. „Ég hef alltaf prjónað mikið á barnabörnin, jafnt peysur sem sokka og vettlinga. Mest nota ég ullargarn eða það sem til fellur. Ég nota þó ekki lopa,“ segir Guðrún og bætir við að það hafi verið mjög skemmtilegt og gefandi að vinna bókina. „Sonur minn, Ýmir Jónsson tók myndirnar og dóttir mín, Hildur Hlín Jónsdóttir, setti bókina upp en þau unnu sömuleiðis fyrri bækur mínar,“ segir Guðrún sem tók sér nokkuð langan tíma að vinna Jólaprjón. „Ég var byrjuð á henni þegar ég tók að mér að gera bókina Teppaprjón ásamt tvíburasystur minni, Þuríði. Síðan byrjaði ég á henni aftur og nú er hún loks tilbúin. Það er bókaútgáfan Forlagið sem gefur út Jólaprjón.
Föndur Jól Menning Mest lesið Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Lífið Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Lífið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Lífið Fataherbergið seldi henni íbúðina strax Tíska og hönnun Krakkatían: Kolbeinn kafteinn, langspil og hvolpar Lífið Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Lífið Tróð upp í Norræna partýinu Lífið Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Lífið Fleiri fréttir Taktu þátt í Ford Fantasy leik Bestu deildar karla Ný vörulína lagar litabletti í húð The House of Beauty fagna sex ára afmæli með látum Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sætu sænsku vörurnar sem farnar eru á flug um allan heim „Probi Female er það eina sem hefur virkað fyrir mig“ SENSAI í Hagkaup í 30 ár Minnkar kláða og ertingu í húð barnsins „Hárið á mér síkkar bókstaflega á hraða ljóssins“ Taktu þátt í BabyShowerleik Vísis Sjá meira