Íslensk gagnaver finna fjölina sína Jóhann Þór Jónsson skrifar 6. desember 2017 11:15 Draumurinn um að laða erlenda tækni- og tölvurisa til Íslands hefur lengi einkennt umræðuna um uppbyggingu gagnaversþjónustu á Íslandi. Draumurinn um að einhver hinna stóru, Google, Apple eða Facebook, reisi hér gagnageymslu hefur þannig yfirskyggt starfsemi þeirra átta fyrirtækja sem hafa skipulega byggt upp sína þjónustu hérlendis á undanförnu árum með góðum árangri. Í stað þess að bíða þess sem verða vildi hafa þau sýnt frumkvæðið, fundið stóra og smáa viðskiptavini um allan heim, selt þeim margvíslega þjónustu á sviði upplýsingatækni og skapað í leiðinni mikil verðmæti fyrir íslenskt samfélag. Gagnaversiðnaðurinn er fjölbreyttari en margan grunar, því hann snýst ekki um það eitt að varðveita gögn heldur líka um vinnslu þeirra. Og það er einmitt í gagnavinnslunni sem mikil tækifæri liggja fyrir Ísland, enda reiðir hún sig í minni mæli á gagnatengingar en hefðbundin gagnavistun þar sem öll gögn þurfa ávallt að vera aðgengileg fyrir alla og gagnaflutningsgetan getur reynst flöskuháls. Gagnavinnslan snýst þannig um að nýta reiknigetu öflugra tölvusamstæða, svokallaðra ofurtölva, til að samkeyra gríðarlegan fjölda gagnapunkta í því skyni að leysa flókin tölfræðileg verkefni af ýmsum toga. Þar skiptir gagnaflutningsgeta minna máli, þar sem afrakstur vinnunnar er sendur til verkkaupans að henni lokinni. Þannig voru íslenskar ofurtölvur nýverið notaðar í byltingarkenndri læknisfræðitilraun, sem unnin var í samstarfi læknadeildar Stanford háskóla í Bandaríkjunum og þýsk-ameríska tæknifyrirtækisins Ubercloud. Með flókinni hermun á starfsemi hjartans var líkt eftir áhrifum lyfjagjafar á hjartað, til að minnka hættuna á því að lyfjagjöf valdi hjartsláttartruflunum og auðvelda læknum að meta hvaða lyf hentuðu sjúklingi best. Verkefnið (The Living Heart Project) hefur vakið gríðarlega athygli og á síðustu vikum hlotið þrenn verðlaun. Sama rannsóknarteymi er nú ásamt Indversku tauga- og geðrannsóknarmiðstöðinni (NIMHANS) að hefja rannsóknir á heilanum, þar sem rannsakað verður hvernig megi hafa áhrif á og meðhöndla geðklofa. Í þeirri rannsókn fer flókin gagnaúrvinnsla fram í íslenskum ofurtölvum. Ýmsar aðrar atvinnugreinar sækjast í að framkvæma sína útreikninga og hermanir í íslenskum gagnaverum. Má þar nefna bílaframleiðendur, veðurstofur og tryggingafélög sem öll hafa þörf fyrir gríðarlega reiknigetu fyrir flókna útreikninga. Hérlendis skapar samspil hita og raka kjöraðstæður fyrir ofurtölvur, en ítarlega er fylgst með afköstunum þar sem vélarnar eru gríðarlega dýrar og hvert prósent í afköstum því mikilvægt. Ekki skemmir fyrir að kolefnissporið er miklu minna en víðast hvar, sem skiptir erlenda samstarfsaðila sífellt meira máli. Þá krefst starfsemin mikillar þjónustu, t.d. við uppsetningu og bestun hugbúnaðar, og hér hefur því skapast mikil og verðmæt sérþekking í iðnaði sem er í miklum vexti. Nýjustu afkastamælingar sýna að ofurtölva á Íslandi afkastar 6-7% meira en algengt er erlendis, þökk sé hagstæðum ytri aðstæðum og þekkingu íslenskra sérfræðinga. Spurn eftir þjónustu af þessu tagi mun að öllum líkindum aukast hratt á næstu misserum, enda má spara bæði tíma og fyrirhöfn með því að hanna, þróa og álagsprófa vörur með stafrænum hætti í gagnaveri áður en til framleiðslu kemur og koma í veg fyrir að að gallaðar vörur rati í hendur neytenda. Þótt rekstrarumhverfi íslenskra gagnavera hafi breyst til hins betra á undanförnum árum eru enn fjölmörg ónýtt tækifæri í greininni. Í mati sínu á því hversu auðvelt er að stunda viðskipti í ríkjum heims setur Alþjóðabankinn Ísland í 23. sæti, á meðan Danmörk er í þriðja sæti, Noregur í áttunda og Svíþjóð í tíunda. Það sama gildir um skattaumhverfið þar sem Ísland er í 29. sæti, langt að baki samkeppnisríkjum eins og Írlandi, Danmörku og Kanada. Úr þessum þurfum við að bæta, svo halda megi áfram að skapa verðmæti til hagsbóta fyrir land og þjóð. Áherslur nýrrar ríkisstjórnar gefa ástæðu til bjartsýni, enda er rík áhersla lögð á nýsköpun, menntun og þróun í stjórnarsáttmálanum sem undirritaður var í síðustu viku. Hugverkaiðnaður og skapandi greinar verða drifkraftur breytinga á komandi árum og því mun uppbygging tæknilegra innviða auka möguleika hugverkaiðnaðarins á að skapa aukin verðmæti. Höfundur er formaður Samtaka Gagnavera (DCI) og forstöðumaður rekstrar hjá Advania Ísland ehf.Greinin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ég kýs JÁ ! - Hvers vegna? skrifar Skoðun Kveðja til hleðslukvíðans Úlfar Linnet skrifar Skoðun Samkeppnishæfni Íslands Ingvar Þóroddsson skrifar Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Traust er ekki sjálfgefið Hilmar Freyr Gunnarsson skrifar Skoðun Evrópusambandið, skjól frá Bandaríkjunum? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar