Ásgeir Örn og félagar sluppu með skrekkinn á móti botnliðinu Tómas Þór Þórðarson skrifar 22. nóvember 2017 20:38 Ásgeir Örn Hallgrímsson í leik með Nimes. Vísir/Getty
Ásgeir Örn Hallgrímsson og félagar hans í franska 1. deildar liðinu Nimes sluppu með skrekkinn þegar að þeir mættu botnliði Massy á heimavelli í kvöld. Nimes vann tveggja marka sigur, 27-25, eftir æsispennandi lokamínútur. Heimamenn voru 22-19 þegar fimmtán mínútur voru eftir og allt í fínum málum. Þá skoraði botnliðið fjögur mörk í röð og komst yfir, 23-22, en liðin skiptust svo á að skora þar til undir lokin þegar að Nimes komst í 26-25 og kláraði leikinn svo með marki úr vítakasti þegar að tíu sekúndur voru eftir, 27-25. Ásgeir Örn átti tvö skot á markið í kvöld en hvorugt þeirra gekk þannig að hann lauk leik án þess að skora. Hann hefur verið meiddur að undanförnu en gott að vita að hann er allur að koma til. Nimes er með 18 stig í efsta sæti deildarinnar, stigi á undan Montpellier, eftir tíu umferðir. Liðið er búið að vinna níu leiki og tapa aðeins einum. Sömu sögu er aftur á móti ekki að segja um hitt Íslendingaliðið, Cesson-Rennes. Það tapaði á heimavelli, 30-22, á móti Chambéry í kvöld og er án sigurs en með tvö stig í neðsta sæti deildarinnar. Geir Guðmundsson skoraði tvö mörk úr fimm skotum fyrir Cesson-Rennes en Guðmundur Hólmar Helgason er meiddur.
Handbolti Mest lesið HM-ævintýrið búið hjá Heimi Fótbolti Tíu ára strákur efstur Íslendinga Sport Dýrt að taka þátt í HM eftir ný lög Donalds Trump Fótbolti Þetta eru liðin sem mætast í úrslitakeppninni Körfubolti „Ég elska að vera hérna í Grindavík“ Sport Arnar: Svo áttar maður sig á því að maður er fáviti Sport Ísland - Eistland 6-2 | Mörkunum rigndi hjá íslensku strákunum í Laugardalnum Fótbolti „Stærsti draumur lífs míns, mesta afrek lífs míns“ Fótbolti Banna trans konum að keppa á Ólympíuleikunum Sport Uppgjör: KR - Tindastóll 99-101 | Stólarnir gulltryggðu annað sætið Körfubolti Fleiri fréttir FH-ingar 1-0 yfir á móti meisturunum Haukarnir léku sér að Mosfellingum í fyrsta leik Strákarnir okkar með Serbíu og Úkraínu í riðli Hæstánægður á Íslandi þrátt fyrir neglu í andlitið Hópurinn sem á að koma Íslandi á fjórða stórmótið í röð „Stelpurnar skipta okkur alveg jafn miklu máli og strákarnir“ Janus hjá Barcelona næstu þrjú árin Snöggreiddust Ómari og báðu hann um að róa sig gegn Dönum Uppselt á alla leiki Íslands en HSÍ verður með hópferðir „Ekki fallegur sigur og áttum hann eiginlega ekki skilið“ „Djöfull er ég helvíti drullufúll“ Uppgjörið: Valur - HK 42-39 | Deildarmeistararnir þurftu framlengingu KA-menn fögnuðu eftir rosalegan leik í Eyjum Óðinn var fullkominn í flottum sigri Ólafur leggur skóna á hilluna: „Auðvitað er þetta svolítið skrýtið“ „Gaman að hann hafi tekið eftir mér þar“ Elvar með stórleik í flottum sigri Sigurgangan endaði í síðasta leik fyrir úrslitakeppni Fer frá Selfossi til Svíþjóðar Stjarnan lætur Hrannar fara fyrir umspilið Lykilmenn lýsa yfir stuðningi við Alfreð Gagnrýnir HSÍ og bendir á misræmi: „Galið dæmi“ Meistaraskjöldurinn kom óvænt í leitirnar Bikarinn brotnaði við lyftingu HK flaug upp í Olís-deildina Ósáttur við sóknina í fyrri hálfleik: „Fannst við of hægir og staðir“ „Getum ekki alltaf spilað á sama liðinu“ Uppgjörið: Ísland - Svíþjóð 27-30 | Gamlir draugar létu á sér kræla Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Dramatísk endurkoma Stjörnunnar felldi Selfoss Sjá meira