Trygg(v)ir ekki eftir á Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. nóvember 2017 06:00 Tryggvi Snær Hlinason sækir að körfu Búlgara í Höllinni á mánudagskvöldið. Hann hitti úr öllum skotum sínum í leiknum. vísir/anton „
Þetta verður erfið nótt,“ sagði Martin Hermannsson í samtali við íþróttadeild eftir tap á móti Búlgaríu í Höllinni á mánudagskvöldið. Martin hafði gert sitt í leiknum og íslenska liðið var búið að koma sér í stöðu til að landa dýrmætum sigri. Niðurstaðan varð hins vegar annað tapið á fjórum dögum og neðsta sæti riðilsins. Ísland hefur komist á tvö Eurobasket-mót í röð og var á heimavelli á móti þjóð sem hefur ekki komist á Eurobasket í sex ár. Það er hægt að kvarta yfir úrslitunum enda alltaf slæmt að byrja undankeppni á tveimur tapleikjum en það er engu að síður hægt að gleðjast yfir því að tveir ungir leikmenn verða alltaf betri og betri í hvert skipti sem við sjáum þá í landsliðstreyjunni.Martin frábær í báðum leikjum Martin Hermannsson var yfirburðamaður í íslenska liðinu þegar við tökum þessa tvo leiki saman. Hann hefur tekið yfir hlutverk Jóns Arnórs Stefánssonar sem burðarás liðsins. Martin var með 25 stig að meðaltali og 58 prósenta skotnýtingu í leikjunum tveimur. Það er ekkert skrýtið að hann hafi verið svekktur því hann gerði svo sannarlega sitt til að liðið ynni leikinn. Tryggvi Snær Hlinason sýndi líka með 6 vörðum skotum, 6 fráköstum, 6 stigum og 3 stoðsendingum á 22 mínútum að þar fer framtíðarhetja íslenska liðsins. Margir sáu Hauk Helga Pálsson taka við af Jóni Arnóri Stefánssyni en hann spilaði meiddur í þessum tveimur leikjum og var að spila alltof mikið þegar það var löngu ljóst að hann var ekki í leikhæfu ástandi. Reynsluboltarnir Hlynur Bæringsson og Jakob Sigurðarson hjálpuðu liðinu mikið og eru ómetanlegur styrkur fyrir unga leikmenn liðsins. Það er jákvætt að ungir leikmenn fengu tækifærið í þessum leikjum en það er líka áhyggjuefni þegar þjálfarinn treystir þeim ekki á úrslitastundu. Búlgarar þakka honum örugglega fyrir það að geyma Tryggva Snæ Hlinason löngum stundum á bekknum í síðari hálfleik.Hversu mikil framtíð er í því? Það er spurning hversu mikil framtíð er í þjálfara sem vill ekki nota framtíðarlykilmann liðsins eða í það minnsta er alltof oft upptekinn við að finna ástæður til að spila ekki Tryggva frekar en öfugt. Liðið er nú búið að falla á nokkrum mikilvægum prófum í röð og tapleikirnir eru nú orðnir tíu í röð. Eitt stórt vandamál er þó meðferð hans á miðherjanum Tryggva Snæ Hlinasyni. Leikmanni sem hann þarf að laga leik liðsins að en ekki öfugt. Craig og aðstoðarmenn hans skrifuðu mínútuleysi Tryggva á hans eigin frammistöðu. Þeir voru samt með meiddan mann í algjöru tjóni inn á á sama tíma.Óslípaður demantur Craig er með óslípaðan demant í höndunum. Leikmann sem flestir landsliðsþjálfarar Íslands á síðustu árum hefðu gefið mikið til að hafa. Leikmann sem er betri í hvert skipti sem þú sérð hann spila. Hversu augljósara getur þetta verið? Tryggvi spilaði líka alltof lítið á EM síðasta haust og nú er bara komin upp sú staða að liðið þarf að laga sinn leik að honum en ekki öfugt. Tryggvi er frábær sendingamaður sem hefur allt til alls til að fá mínútur og fá boltann oft í sókninni. Hann gerir sín mistök í vörninni en það gera nú fleiri.Á alltaf að vera aðalmaðurinn Ekki var álagið að plaga strákinn enda var hann ekki með í fyrri leiknum. Ekkert nema villuvandræði áttu að halda honum á bekknum en þjálfarinn frystir hann og gagnrýnir hann fyrir að Búlgarar hafi átt of auðvelt með að skora á hann. Martin er maðurinn, Tryggvi á að vera maðurinn og ungir frískir leikmenn eins og Kristófer Acox og Kári Jónsson verða í lykilhlutverkum næsta áratuginn. Það er því hægt að horfa jákvætt fram á veginn en við tryggjum ekki eftir á. Þjálfarinn þarf að setja Tryggva í fyrsta sætið og það strax. Hann er með framtíð íslenska landsliðsins í höndunum.Tryggvi treður yfir varnarmann Búlgaríu.vísir/anton
Körfubolti Tengdar fréttir Fannar: Stór mistök að hafa Tryggva ekki inn á undir lokin Fannar Ólafsson, fyrrverandi landsliðsmiðherji og sérfræðingur Domino's Körfuboltakvölds á Stöð 2 Sport, skilur ekki af hverju Tryggvi Snær Hlinason var ekki inn á hjá íslenska landsliðinu undir lok leiksins gegn Búlgaríu í gær. 28. nóvember 2017 19:15 Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Gylfi með til Eistlands Fótbolti Meiddist í Portúgal Enski boltinn Fleiri fréttir Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Sjá meira
Fannar: Stór mistök að hafa Tryggva ekki inn á undir lokin Fannar Ólafsson, fyrrverandi landsliðsmiðherji og sérfræðingur Domino's Körfuboltakvölds á Stöð 2 Sport, skilur ekki af hverju Tryggvi Snær Hlinason var ekki inn á hjá íslenska landsliðinu undir lok leiksins gegn Búlgaríu í gær. 28. nóvember 2017 19:15