Ummæli Sigmundar Davíðs þar sem hann vill með óbeinum hætti eigna sér viðunandi útkomu Framsóknarflokksins í kosningunum, það sem Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknar kallar varnarsigur, hafa vakið mikla athygli. Og jafnvel furðu. Ef þetta væri á skólaballi, þá er líkast því að Sigmundur sé að gera hosur sínar grænar fyrir Lilju Dögg Alferðsdóttur, varaformann Framsóknarflokksins, sem þó kom með Sigurði Inga á ballið.
„Á sama tíma er Framsóknarflokkurinn, með því að nota bandamann okkar, Lilju Alfreðsdóttur, sem sitt helsta útspil í kosningabaráttunni og treysta á Miðflokksmanninn í Framsóknarflokknum til að leiða hann til sigurs, að ná ágætis árangri. Að vísu minnsta fylgi sem Framsóknarflokkurinn hefur fengið í 100 ár en samt ágætis árangur,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson á kosningavöku Miðflokksins og uppskar dynjandi lófaklapp og hlátur.
Báðir voru þeir, ásamt fleiri leiðtogum flokkanna, gestir Heimis Más Péturssonar í Kosningauppgjöri á Stöð 2 nú fyrr í dag. Heimir Már spurði Sigurð Inga út í þessi ummæli.
Þeir voru kannski aldrei með okkur
„Nú er það þannig, Heimir, að fyrrverandi formaður flokksins gekk úr flokknum og stofnaði nýjan flokk. Í Framsóknarflokknum er gríðarlega samheldur traustur hópur. Ég og Framsóknarflokkurinn þurfum ekki lengur að svara fyrir svona tal. Það verður að beina því að öðrum. Framsóknarflokkurinn kemur ótrúlega sterkur. Við vorum með átta þingmenn í kosningunum á síðasta ári. Tveir af þeim stofnuðu nýjan flokk. Þeir voru kannski aldrei með okkur. Við erum með átta í dag,“ sagði Sigurður Ingi og er þá að vísa til þess að Sigmundur Davíð ásamt Gunnari Braga Sveinssyni yfirgáfu flokkinn og voru í framboði fyrir Miðflokkinn.
Sigurður Ingi og bætti því við, spurður nánar út í þetta atriði: „Ég er svo heppinn að ég þarf ekki að svara fyrir svona tal lengur.“
Ég bara þekki Lilju
Heimir Már vék þá sambærilegri spurningu til Sigmundar Davíðs, hvernig á því standi að hann telji Lilju einhvern sérstakan bandamann Miðflokksins?
„Ég bara þekki Lilju Alfreðsdóttur og þá pólitík sem hún stendur fyrir. Það eru eflaust margir öflugir og góðir bandamenn í fleiri flokkum. Það eru fullt af fólki sem vill sjá nýja nálgun á stjórnmálin. Nálgast þau á grundvelli þess sem ég hef stundum kallað róttæka rökhyggju,“ sagði Sigmundur Davíð. Og útskýrði að það kæmi sér vel að Miðflokkurinn ætti sem flesta bandamenn nú þegar fyrir dyrum stæðu stjórnarviðræður.
Vísir hefur reynt að ná í Lilju Dögg til að spyrja hana nánar út í þessi ummæli Sigmundar Davíðs en án árangurs. Mbl.is hafði erindi sem erfiði, og þó, því þar svarar Lilja næsta litlu um þetta atriði. Segir ummælin ekki stóra málið.