Fótbolti

Núllstilltum okkur og fórum aftur í grunngildin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lokaundirbúningurinn. Íslensku strákarnir æfðu í gær í síðasta sinn fyrir leikinn mikilvæga gegn Kósovó á Laugardalsvellinum.
Lokaundirbúningurinn. Íslensku strákarnir æfðu í gær í síðasta sinn fyrir leikinn mikilvæga gegn Kósovó á Laugardalsvellinum. vísir/ernir
Klukkan 18.45 í kvöld flautar austurríski dómarinn Harald Lechner til leiks í leik Íslands og Kósovó í undankeppni HM 2018. Þetta er síðasti leikur Íslendinga í undankeppninni og með sigri í honum tryggja strákarnir okkar sér farseðilinn til Rússlands. Líkurnar eru okkar mönnum í hag en Ísland hefur ekki tapað í síðustu 12 keppnisleikjum á Laugardalsvelli; unnið níu og gert þrjú jafntefli.

Eftir vonbrigðin í Tampere, þar sem íslenska liðið tapaði fyrir því finnska, hafa Íslendingar risið upp á afturlappirnar og komið sér í draumastöðu með tveimur sigrum á Úkraínu og Tyrklandi.

Allir leikmenn íslenska liðsins eru klárir í slaginn fyrir leikinn í kvöld, að frátöldum Birni Bergmann Sigurðarsyni sem er meiddur. Heimir Hallgrímsson segir að íslenska liðið komi vel undan leiknum í Tyrklandi á föstudaginn.

„Það segjast allir vera tilbúnir. Það væri skrítinn íþróttamaður sem myndi ekki vilja spila þennan leik,“ sagði Heimir í samtali við Fréttablaðið í gær. Hann segir að leikmenn íslenska liðsins séu komnir niður á jörðina eftir sigurinn frábæra í Eskisehir á föstudaginn.

Íslensku strákarnir eru vel stemmdir fyrir leikinn í kvöld.vísir/ernir
Þýðir ekki að vera í skýjunum

„Auðvitað var þetta skemmtilegur og góður leikur en menn vita mikilvægi þessa leiks og við höfum talað um það frá upphafi að þetta myndi ráðast í síðasta leik; að hann yrði úrslitaleikur sem hann og er. Það gera sér allir grein fyrir því að það þýðir ekki að vera uppi í skýjunum að spila þennan úrslitaleik,“ sagði Heimir. Eyjamaðurinn segir að íslenska liðið hafi horft inn á við eftir tapið gegn Finnum og lagt áherslu á grunngildin sem hafa fleytt Íslendingum langt á undanförnum árum.

„Við lærðum af leiknum úti gegn Finnum, þegar við ætluðum okkur aðeins of mikið og fengum það í andlitið. Það fer oft þannig þegar menn fara að hugsa um eitthvað annað en þeir eiga að gera. Við lærðum heilmikið af þessum Finnaleik og kannski verður það bara það besta fyrir okkur, að hafa tapað þeim leik,“ sagði Heimir.

Einbeiting og agi

„Við núllstilltum okkur fyrir þessa tvo leiki og fórum aftur í grunngildin okkar. Það hefur sést svo um munar fyrir hvað við stöndum. Þótt liðið sem við erum að fara að spila við sé í neðsta sæti spilum við alltaf best þegar við spilum á okkar grunngildum. Við þurfum að vera mjög einbeittir og agaðir.“

Þótt Kósovó sé á botni I-riðils með einungis eitt stig er ýmislegt í liðið spunnið eins og Ísland fékk að kynnast í fyrri leiknum. Íslendingar unnu þá torsóttan 1-2 sigur með mörkum Gylfa Þórs Sigurðssonar og Björns Bergmanns.

Heimir talar af mikilli virðingu um lið Kósovó sem er að taka þátt í sinni fyrstu undankeppni. Hann hefur sérstaklega hrifist af starfi Alberts Bunjaki sem stýrir Kósovó í síðasta sinn í kvöld.

Úr fyrri leik Íslands og Kósovó.vísir/getty
Metum þá ekki út frá stöðunni

„Þetta er lið sem þú vanmetur ekki. Ég ætla að nýta tækifærið til að hrósa þjálfaranum sem þurfti í upphafi þessarar keppni að taka saman leikmenn sem hafa aldrei spilað saman. Hann hefur ekki bara búið til sterkari og sterkari liðsheild heldur er hann á sama tíma að finna hvaða leikmenn eru þeir bestu. Það hefur verið ótrúlega lærdómsríkt að fylgjast með hversu hratt og vel hann hefur búið til gott lið,“ sagði Heimir.

„Ef við tökum bara þrjá síðustu leiki töpuðu þeir 1-0 fyrir Króötum og Finnum og svo síðast 2-0 fyrir Úkraínumönnum í mjög jöfnum leik. Það er enginn hjá okkur að fara að vanmeta þá. Við metum þá ekki út frá því hvaða stöðu þeir eru í, heldur út frá því að við höfum horft á alla leikina þeirra og lagt mikið í að leikgreina þá. Við berum mikla virðingu fyrir þeim.“

Möguleiki á breytingum

Heimir gerði tvær breytingar á byrjunarliði Íslands fyrir leikinn gegn Tyrkjum. En á hann von á því að gera breytingar á byrjunarliðinu fyrir leikinn mikilvæga í kvöld?

„Það má alltaf eiga von á því,“ sagði Heimir og brosti í kampinn. „Það er erfitt að taka menn út úr byrjunarliðinu eftir jafn góðan leik og á móti Tyrkjum. En við erum með stóran og breiðan hóp og það er alveg líklegt að byrjunarliðið breytist.“


Tengdar fréttir

Enginn í leikbanni á morgun

Enginn leikmaður Íslenska landsliðsins verður í leikbanni á morgun þegar Íslands tekur á móti Kosovó í einum mikilvægasta leik landsliðsins frá upphafi.

Hefðum alltaf tekið þessa stöðu

Aron Einar Gunnarsson leikur sinn 75. landsleik þegar Ísland tekur á móti Kósovó í kvöld. Fyrirliðinn er klár í slaginn. Hann segir að íslenska liðið sé komið með mikla reynslu af úrslitaleikjum sem þessum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×