Fótbolti

Aron Einar klár í slaginn | Björn Bergmann frá vegna meiðsla

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron Einar og Heimir sátu fyrir svörum á blaðamannafundinum í morgun.
Aron Einar og Heimir sátu fyrir svörum á blaðamannafundinum í morgun. vísir/ernir
Allir leikmenn íslenska landsliðsins eru klárir í slaginn fyrir leikinn mikilvæga gegn Kósovó á morgun, fyrir utan Björn Bergmann Sigurðarson sem er meiddur.

Björn Bergmann var ekki leikfær gegn Tyrklandi á föstudaginn og verður ekki klár í slaginn fyrir leikinn á morgun. Kjartan Henry Finnbogason var kallaður inn í hópinn í stað Björns Bergmanns.

Aron Einar Gunnarsson sat fyrir svörum ásamt Heimi Hallgrímssyni á blaðamannafundi á Laugardalsvelli í morgun. Hann segist vera í góðu ásigkomulagi en fyrirliðinn hefur glímt við meiðsli að undanförnu.

„Ég er góður, bara stífur en það er vegna þess að ég var ekki búinn að spila neitt eða æfa í eina og hálfa viku. En ég er góður og flest allir komu vel undan leiknum. Við erum klárir fyrir leikinn á morgun,“ sagði Aron Einar sem leikur sinn 75. landsleik annað kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×