Kristófer fær hrós á Filippseyjum: Kannski einmitt það sem liðið þurfti fyrir úrslitakeppnina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. september 2017 08:30 Kristófer Acox. vísir/óskaró
Kristófer Acox gat ekki hjálpað KR-ingum í Evrópukeppninni en landsliðsframherjinn hefur aftur á móti hjálpað liði Star Hotshots mikið á Filippseyjum. Frammistaða Kristófers í fyrstu leikjum sínum með Star Hotshots liðinu kom honum í fimm manna úrvalshóp yfir bestu frammistöðu vikunnar. Þetta kemur fram á heimasíðu deildarinnar. Star Hotshots náði heimavallarétti í úrslitakeppninni þökk sé tveimur sigurleikjum í röð þar sem Kristófer skilaði flottum tölum. „Hann er kannski ekki að skila svakalegum tölum en Kristófer Acox var einmitt það sem liðið þurfti fyrir úrslitakeppnina. Þessi fyrrum leikmaður hjá Furman háskólanum hjálpaði Hotshots-liðinu að vinna báða leiki sína í vikunni og tryggja sér fjórða sætið í deildinni. Næst á dagskrá eru leikir á móti NLEX Road Warriors og þar er meira undir,“ segir í umfjölluninni um Kristófer á heimasíðu PBA deildarinnar. Kristófer var með 19 stig, 15 fráköst, 3 stoðsendingar, 2 stolna bolta og 2 varin skot í fyrri leiknum í vikunni en í þeim seinni var íslenski landsliðsmaðurinn með 14 stig, 10 fráköst, 2 stoðsendingar og 2 stolna bolta. Tveir góðkunningjar íslenska körfuboltans eru líka í úrvalsliðinu eða þeir JNathan Bullock, sem var á sínum tíma Íslandsmeistari með Grindavík og Terrence Watson sem gerði góða hluti með Haukum fyrir nokkrum árum. Úrslitakeppnin á Filippseyjum hefst á þriðjudaginn og mætir Hotshots liði NLEX í átta liða úrslitunum. Star Hotshots í undanúrslit er með heimaleikjarétt og þarf aðeins að vinna einn leik til að komast áfram en NLEX, sem endaði neðar, þarf hinsvegar að vinna tvo leiki til að komast í undanúrslitin.
Körfubolti Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Gylfi með til Eistlands Fótbolti Meiddist í Portúgal Enski boltinn Fleiri fréttir Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Sjá meira