Íslenskt þjálfarauppgjör í Meistaradeildinni í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. september 2017 16:00 Aron Kristjánsson og Alfreð Gíslason. Vísir/Getty
Íslensku þjálfararnir Alfreð Gíslason og Aron Kristjánsson mætast í kvöld með lið sín í Meistaradeildinni í handbolta. Kiel, lið Alfreðs, tekur þá á móti Álaborg, liði Arons í Sparkassen-Arena í Kiel. Álaborgarliðið hefur byrjað vel í Meistaradeildinni á þessu tímabili en ekki er sömu sögu að segja af Kiel. Kiel er í mikilli krísu þessa dagana en þýska stórliðið hefur tapað fimm af fyrstu átta leikjum sínum í þýsku deildinni og Meistaradeildinni. Báðir Meistaradeildarleikirnir hafa tapast fyrst með þremur mörkum á heimavelli á móti Paris Saint-Germain (22-25) og svo með 11 marka mun á útivelli á móti pólska liðinu Vive Tauron Kielce (21-32). Álaborgarliðið vann 32-30 sigur á Celje í síðasta leik og missti síðan nánast frá sér unninn leik á móti Flensburg-Handewitt í fyrstu umferðinni. Flensburg vann 30-27 eftir að hafa snúið leiknum við á síðustu tíu mínútunum. „Kiel er fyrst og fremst klassaklúbbur sem er með mjög sterkan heimavöll. Það er pressa á liðinu og því verða þeir eflaust enn tilbúnari fyrir leikinn í kvöld,“ sagði Aron Kristjánsson í viðtali við dr.dk. Ætti pressan á Kiel ekki að hjálpa Álaborg í kvöld? „Það er ekki gott að segja því þetta gæti farið í báðar áttir. Ef við stöndumst pressuna þeirra í byrjun þá eigum við möguleika. Ef þeir byrja aftur á móti vel og spila á fullum krafti í 60 mínútur þá verður þetta erfitt. Það er munur á Kiel á heima- og útivelli,“ sagði Aron og hann er nú ekki alltof bjartsýnn fyrir hönd síns liðs. „Þeirra möguleikar eru 70 á móti 30. Ef hlutirnir gagna upp hjá okkur og ef þetta verður ekki góður leikur hjá þeim þá getur allt gerst,“ sagði Aron.
Handbolti Mest lesið Endurkomusigur í stórskemmtilegum opnunarleik Enski boltinn „Eiginlega alveg viss“ um að Rashford megi spila á morgun Fótbolti „Ég hélt að við værum komin lengra“ Enski boltinn „Betra er seint en aldrei“ Enski boltinn Tryggvi lét mest til sín taka í tapi gegn Portúgal Körfubolti Opnunarleikurinn var stöðvaður vegna kynþáttaníðs Enski boltinn Villareal vann í endurkomu Cazorla og frumraun Partey Fótbolti ÍBV segir tvær hliðar á málinu og óskar Kára velfarnaðar Handbolti Kristall farinn að skora aftur eftir meiðslin Fótbolti Stórkostleg tölfræði Salah í fyrsta leik Enski boltinn Fleiri fréttir ÍBV segir tvær hliðar á málinu og óskar Kára velfarnaðar Unnu Ungverja og spila við heimamenn um fimmta sætið á HM Kári Kristján spilar aldrei aftur fyrir ÍBV Sárt tap gegn Dönum á HM Viktor Gísli fær treyju númer eitt hjá Barcelona Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Slóvenskt undrabarn skoraði 23 mörk gegn Noregi Tap setur Ísland í erfiða stöðu Stelpurnar unnu Noreg á EM og tryggðu sér sautjánda sætið Strákarnir unnu Brassa og fóru áfram með fullt hús Leika um 17. sætið á EM eftir sigur á Austurríki Ágúst Elí leysir af Landin hjá besta liði landsins Leðurblökur að trufla handboltafélag Markvörður íslenska liðsins með fimm mörk Íslensku strákarnir byrjuðu HM á 22 marka sigri Þýsku meistararnir urðu að segja upp öllum leikmönnunum sínum Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Guðjón Valur orðaður við Kiel Holland fór illa með stelpurnar okkar í seinni hálfleik Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Stelpurnar fóru illa með færeyrsku frænkur sínar Sú markahæsta sett í bann því liðsfélagarnir neita að æfa með henni Ekkert spilað í þrjú ár eftir ítrekuð læknamistök Gull og brons á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar Annað risastórt kvennahandboltafélag gjaldþrota Strákarnir brunuðu í úrslitaleikinn Tjörvi Týr færir sig um set í Þýskalandi Ákvað að fara þegar faðir hans var rekinn Stelpurnar tryggðu sér fimmtánda sætið Sjá meira