Of fatlaður fyrir rafmagnshjólastól Jóhann Óli Eiðsson skrifar 7. júlí 2017 09:30 Rafmagnshjólastól þarf maðurinn að greiða úr eigin vasa. NORDICPHOTOS/AFP
Sjúkratryggingar Íslands þurfa ekki að taka þátt í kostnaði við kaup á rafmagnshjólastól fyrir fjölfatlaðan karlmann. Þetta er niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála. Í umsókn um styrk til kaupa á rafmagnshjólastólnum segir að maðurinn sé með CP og flogaveiki. Hann sé í hjólastól alla daga. Þá er hann með ýmsa áráttukennda hegðun, meðal annars gleypi hann loft og þurfi oft að ropa en til að losa loftið þurfi að setja hann í upprétta stöðu. Nýi stóllinn, sem sótt var um styrk fyrir, bjóði upp á að reisa hann í upprétta stöðu og auðveldi því bæði að losa loft sem og bleyjuskipti. Umræddur stóll kostar um fjórar milljónir króna. Sjúkratryggingar Íslands synjuðu umsókn mannsins þar sem hann félli ekki undir skilyrði reglugerðar um styrki vegna hjálpartækja. Niðurstaða stofnunarinnar var sú að maðurinn væri svo fatlaður að hann gæti ekki uppfyllt þau skilyrði sem gerð eru fyrir kostnaðarþátttöku. Synjun stofnunarinnar var kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála. Í niðurstöðu nefndarinnar segir að ljóst sé að nýi stóllinn myndi auðvelda umönnun mannsins til muna, en hún lendir að hluta á föður hans á sjötugsaldri. Meginmarkmið styrksins sé hins vegar að koma til móts við þá sem eiga erfitt með að brúka handdrifinn hjólastól. Þar sem maðurinn væri of fatlaður til að stýra stólnum sjálfur og að hann myndi eingöngu auðvelda umönnun var synjun Sjúkratrygginga staðfest.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Viðbrögð við bókasafnstillögu bendi til læsisvanda Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Sjá meira