Innlent

Persónulegt áfall að lenda í tölvuþrjótum

Jakob Bjarnar skrifar
Skúli Gautason. Krafan var ekki mjög há, 30-50 þúsund krónur, ekki hærri en svo að Skúli hugleiddi hvort hann ætti að borga.
Skúli Gautason. Krafan var ekki mjög há, 30-50 þúsund krónur, ekki hærri en svo að Skúli hugleiddi hvort hann ætti að borga. visir/pjetur
Skúli Gautason, leikari, söngvari og menningarfulltrúi Vestfjarða, varð fyrir því í vor að fá vírus í tölvu sína, sem svipar til þess sem nú geisar. Hann segir það hafa verið djöfullega reynslu, persónulegt áfall því um er að ræða árás í persónulegt líf þess sem verður fyrir slíku. Skúli sagði Vísi þá sögu ef hún kynni að reynast víti til varnaðar.

„Þetta var í vinnutölvu. En kom upp í gegnum íslenska síðu sem ég notaði talsvert í tengslum við vinnu mína. En, þar hafði greinilega verið plantað inn einhverju forriti,“ segir Skúli.

Þetta var fyrir um tveimur mánuðum en nú er búið að leggja umræddri síðu, henni var lokað samdægurs.

„Þetta leit ótrúlega sakleysislega út. Síðan var bjöguð og ég fékk meldingu um að ég þyrfti að uppfæra font, eða stafagerð, til að síðan birtist eðlilega. Ég asnaðist til að smella á þetta og þá var um leið búið að dulrita öll gögn á tölvunni, á Google Drive og á öllum Dropbox reikningum sem er deilt með mér.“

Ísköld tilkynning um hvernig ætti að greiða

Þetta var ákaflega lævíslegt. Skúli taldi sig þekkja síðuna vel og hann segir að þetta ætti að kenna fólki að vera tortryggið á netinu. Um leið og Skúli hafði samþykkt að uppfæra fontinn birtist gluggi á skjánum.

Skaðinn sem fólk sem lendir í tölvuþrjótum verður fyrir er tilfinnanlegur og tilfinningalegs eðlis. Þetta er innrás í persónulegt líf.
„Viðmótið á þeim glugga var bisnessmódel. Tilkynning: Nú hafa öll gögn á tölvunni þinni verið dulkóðuð. Þetta var kalt og viðskiptalegt, alls ekki fruntalegt, ítarlegar upplýsingar um hvernig maður ætti að borga.“

Skúli átti að borga í bitcoin, hvers vegna veit hann ekki. Kannski að erfiðara sé að rekja það? „Ég setti mig ekki inní það. Þegar þetta gerðist, þegar ég áttaði mig á því að það væri kominn vírus, slökkti ég á tölvunni, reif hana strax úr sambandi. Og það bjargaði einhverju.“

Krafan ekki mjög há

Skúli man ekki nákvæmlega hversu há krafan var. Engin ósköp, eitthvað á milli 30 til 50 þúsund íslenskra króna. „Ekki hærri en svo að maður hugleiddi það alvarlega að borga þetta bara.“

Skúli setti sig í samband við menn sem hann þekkir og starfa við vírusvarnir. Þeir ráðlögðu honum eindregið frá því að borga. „Bæði væri ekkert öruggt þó maður borgaði að það yrði opnað fyrir aðgang að skjölunum. Og svo í prinsippinu, ef maður er að borga er maður að næra svona starfsemi, kenna þessum netkrimmum að þetta skilar einhverju.“

Ráðlagt að borga ekki

Um leið og þetta gerðist, á sömu sekúndu, voru öll skjöl í tölvunni dulkóðuð og Skúli komst ekki inn í nein skjöl. „Og öll ský einnig, dropbox, þar var ég tengdur við gögn frá hinum og þessum aðilum og félagasamtökum. Þannig að þetta var að valda mörgum fleirum tjóni en manni sjálfum og það er eiginlega það versta. Ég ákvað mjög fljótt að ég ætlaði ekki að borga þetta og tók bara skellinn.“

Skúli fór í það að finna hjá hinum og þessum félagasamtökum sem höfðu ekki verið í gangi þegar þetta kom upp. Þessi skýja-netsvæði vista afrit á viðkomandi tölvu, og tengja sig svo skýið.

Persónulegt áfall að lenda í tölvuárás

„Ef maður fann slíka tölvu var málið að aftengja hana netinu, afrita gögnin og skipta þeim út fyrir þessi dulkóðuðu. Í dropbox er það þannig að þar vistast sjálfkrafa öryggisforrit. Þannig að þar var hægt að endurheimta eitthvað. Hef síðan verið að grafa upp gamlar diskhettur til að ná í gömul afrek.“

Skúli segir það hafa verið persónulegt áfall að lenda í þessu. Þetta sé innrás í persónulegt líf. „Stór hluti þess fer fram í tölvunni og einhver ókunnugur er kominn þar inn – alveg djöfullegt. Og sérstaklega þegar þú ert að valda öðrum tjóni. Mér leið illa með það.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×