Maður frá Íslandi stunginn í Amsterdam Kristín Ólafsdóttir skrifar 15. apríl 2017 10:48 Ráðist var á manninn, sem búsettur er í Reykjavík, í norðurhluta Amsterdam Vísir/Getty
Ráðist var á þrítugan karlmann, sem búsettur er á Íslandi, í Amsterdam í gærkvöldi. Hann er þar staddur í fríi. RÚV greinir fyrst frá. Maðurinn var stunginn með hnífi en er ekki talinn alvarlega særður. Hollenskir fjölmiðlar greindu frá árásinni en þar segir að maðurinn sé íslenskur ferðamaður. Lögregluyfirvöld í Amsterdam gátu aðeins staðfest að maðurinn væri búsettur í Reykjavík og í fríi í Hollandi en ekki hvort um væri að ræða íslenskan ríkisborgara. Árásin átti sér stað á fjölfarinni götu í norðurhluta Amsterdam, um miðnætti að staðartíma. Ekki hefur tekist að ná árásarmanninum en hann flúði vettvang og er talinn hafa haldið í átt að ferju sem flytur gangandi og hjólandi vegfarendur á milli borgarhluta. Fórnarlamb árásarinnar var flutt á sjúkrahús en hann hlaut ekki alvarlega áverka. Ekki hefur tekist að bera kennsl á árásarmanninn og þá er ekki heldur vitað hvort hann þekkti fórnarlambið.Samkvæmt hollenska fjölmiðlinum AD var snjallsíma mannsins stolið í árásinni en fréttastofa RÚV segir manninn ekki hafa verið rændan. Árásir á borð við þessa eru ekki algengar í þessum hluta borgarinnar, að sögn lögreglu á staðnum.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fleiri fréttir Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Sjá meira