Le Monde: Liðsmenn ETA reiðubúnir að leggja niður vopn Atli Ísleifsson skrifar 17. mars 2017 14:18 Franskur lögreglumaður nærri húsi þar sem æðsti leiðtogi ETA, Mikel Irastorza, fannst í franska bænum Ascain í Pýreneafjöllum í nóvember síðastliðinn. Vísir/AFP
Baskneska aðskilnaðarhreyfingin ETA er reiðubúin að leggja niður vopn. Franska blaðið Le Monde hefur eftir heimildarmönnum sínum að uppreisnarhópurinn muni greina frá því síðar í dag að hann muni koma síðustu vopnum sínum í hendur spænskra yfirvalda þann 8. apríl. Spænska fréttastofan Europa Press hefur einnig eftir sínum heimildarmönnum að þetta standi til, en innanríkisráðuneyti Spánar hefur enn ekki tjáð sig um upplýsingarnar. ETA hefur barist fyrir sjálfstæði Baskalands um áratuga skeið, en lýsti yfir einhliða vopnahléi árið 2011. Yfirvöld á Spáni og Frakklandi höfðu þá lengi barist gegn og þrýst á samtökin að leggja niður vopn. Hreyfingin hefur staðið fyrir mannránum og sprengjuárásum í nærri hálfa öld og borið ábyrgð á dauða um átta hundruð manna – sér í lagi spænskum lögreglumönnum, hermönnum og stjórnmálamönnum. Spænsk yfirvöld hafa margoft bannað stjórnmálahreyfingar á vegum liðsmanna ETA, en þær hafa alltaf blossað upp á ný undir nýju nafni. Í sumum sveitarfélögum í spænskum hluta Baskalands hefur slíkum hreyfingum tekist að ná allt að fjórðungs fylgi.
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Erlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Fleiri fréttir Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Sjá meira