Býður konum í kakóhugleiðslu sem opnar hjartað Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 5. mars 2017 20:30
Í Yogastúdíóinu Ánanaustum heldur Kamilla Ingibergsdóttir reglulega kakóathöfn þar sem drukkið er kakó og hugleitt. Kamilla starfaði lengi vel fyrir Iceland Airwaves og ferðaðist um heiminn með hljómsveitinni Of monsters and men. En nú hefur hún algjörlega skipt um stefnu. „Ég kynntist þessu kakói þegar ég þurfi á því að halda. Ég vann of mikið og þurfti komast úr yfirsnúning og nú langar mig til þess að kynna það fyrir fleirum," segir hún og það gerir hún með því að bjóða upp á kakóhugleiðslu. Áður en hugleiðslan byrjar er kakó frá regnskógum Guatemala drukkið en Kamilla hefur tvisvar farið þangað út til að kynnast kakóplöntunni betur og flutti með sér birgðir til landsins.Kamilla búin að fylla ferðatöskuna á leið heim frá Guatemalamynd/kamillaKakóið er ríkt af magnesíum og andoxunarefnum, eykur súrefni til heilans og skerpir fókus. „Ef ég fengi að ráða myndi hvert mannsbarn drekka einn kakóbolla á hverjum degi," segir hún um leið og hún skenkir fréttamanni kakó í bolla.Og hvað á ég að finna þegar ég drekk þetta? Hamingjuna? „Já, ég held það bara. Alla vega fann ég hamingjuna þegar ég drakk þetta," svarar Kamilla hlæjandi.Kamilla í Guatemala í janúar síðastliðnumKakóið færir manni kannski ekki hamingjuna á silfurbakka en hjálpar til við hugleiðsluna sem kemur á eftir drykkjunni. „Við gætum alveg gert þessa athöfn án þess að vera með kakóið. En það er yndislegur hjálpari sem hjálpar manni að opna hjarta sitt, að fókusa og opna á ýmsa hluti sem maður myndi annars ekki leyfa sér að opna á.“Hvaða áhrif hefurðu séð? „Hlátur og grátur. Oft geymum við svo mikla streitu, gremju og alls konar tilfinningar í líkamanum og oft kunnum við ekki að losa um það. En kakóið hjálpar okkur að losa um það án þess að við þurfum að skilgreina sérstaklega hvað við erum að losa.“Kakóplantan í frumskógum GuatemalaKamilla segir kakóið hafa hjálpað sér að finna hvernig hún vilji lifa lífinu. „Ég ákvað það að spurja mig að einni spurningu áður en ég geri nokkuð í lífinu, og það er veitir þetta mér hamingju? Og ef svarið er nei, þá einfaldlega geri ég það ekki.“Og það hefur virkað vel fyrir þig? „Já,“ svarar Kamilla skellihlæjandi. Kamilla hefur hingað til haft athafnir fyrir konur en ætlar að bjóða upp á blandaða kakóathöfn um páskana. Nánari upplýsingar um athafnir, tíma- og staðsetningar má finna á Tix.
Mest lesið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira