Börn Fillon talin tengjast spillingarmáli hans Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 2. febrúar 2017 18:48 Penelope og Francois Fillon. Vísir/afp
François Fillon, forsetaframbjóðandi franskra Repúblikana, liggur enn undir rannsókn vegna meintra spillingarmála tengd honum á meðan hann sat á þingi. Nú telja yfirvöld að börn hans hafi þegið þusundir evra frá föður sínum fyrir „lögfræðistörf“ sín. Áður hefur verið greint frá því að kona Fillons, Penelope, hefði þegið hundruði þúsunda evra fyrir uppdiktuð störf sem aðstoðarkona Fillons. Ekki lítur út fyrir að hún hafi raunverulega unnið fyrir eiginmann sinn. Fillon segir fjölmiðla vera í herferð gegn sér, í þeim tilgangi að eyðileggja framboð hans. Sjá einnig: Fillon ósáttur við fjölmiðlaRannsakendur telja sig nú knúna til þess að athuga hvort að börn Fillon, þau Marie og Charles Fillon, hafi þegið greiðslur sem námu allt að 86 þúsund evrum, en þær greiðslur áttu að hafa verið fyrir sérstök verkefni tengd lögfræðiþjónustu. Hvorugt þeirra hafði þó löggild réttindi sem lögfræðingar á þeim tíma og fengu þau hvort um sig greidd laun fyrir fullt starf, en ekki einungis fyrir þau verkefni sem þau eiga að hafa unnið að. Lögreglan hyggst nú rannsaka málið til hlýtar og gerði hún meðal annars áhlaup í gær á skrifstofur þingsins, til þess að leita uppi skjöl sem sýna fram á að um raunveruleg störf hafi verið að ræða. Fillon var áður talinn líklegur til þess að ná árangri í komandi forsetakosningum, en talið er að þessi mál skaði fylgi hans mjög.
Mest lesið Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla Innlent Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Innlent „Það verður boðið fram í nafni VG“ Innlent Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Innlent Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Innlent Bátur sekkur við Hafnarfjarðarhöfn Innlent „Þjóðaröryggisráð er ekki upp á punt“ Innlent Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Innlent Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Innlent Aftur flagnar Vesturbæjarlaug: „Eins og hún sé með skallablett“ Innlent Fleiri fréttir Dróna- og skuggastríð í Evrópu: Hvað gengur Rússum til og hvað getur NATO gert? Sigar hernum á „hryðjuverkamenn“ í Portland Ráku starfsmenn FBI sem fóru á hnéð eftir morðið á Floyd Fundu leynilega sígarettuverksmiðju í neðanjarðarbyrgi Drónar sáust á flugi yfir herflugvelli í Danmörku og Noregi Ræningjar fjölmenntu með byssur og haka í skartgripabúð Musk, Thiel og Andrés nefndir í nýjum skjölum Epsteins Ætlar að peppa herforingjana á fundinum fordæmalausa Drónaútgerð?: Þingmaður hefur áhyggjur af rússneskum skipum við Færeyjar Fyrrverandi aðstoðarmaður forseta dæmdur fyrir njósnir Yfirgáfu salinn þegar Netanjahú hóf ræðu sína Tekinn af lífi fyrir að myrða stúlkubarn við „særingu“ Comey hvergi banginn þrátt fyrir ákæru Ekki hægt að staðfesta drónaflug við Álaborgarflugvöll Bandaríkjamenn sagðir vilja Tony Blair við stjórnvölinn á Gasa Segist ekki munu leyfa Ísrael að innlima Vesturbakkann Lofthelgi aftur lokað í Álaborg vegna drónaflugs James Comey ákærður vegna Rússarannsóknar Segir NATO og ESB hafa lýst yfir stríði við Rússland Boðar alla herforingjana á fordæmalausan skyndifund Enn lítið vitað um leyniskyttuna og tilefni árásarinnar í Dallas Hóta Demókrötum með umfangsmiklum uppsögnum Fimm ára fangelsi fyrir að taka við fúlgum fjár frá Gaddafi Keppast við að ákæra Comey Trump krefst rannsóknar á „þríþættu skemmdarverki“ hjá SÞ Drónaflug í Danmörku: „Fjölþáttaógnin er að raungerast“ Leikskóli heimtar tugi þúsunda fyrir „listaverk“ barnanna Ætlar sér að koma böndum á sjónvarpsstöðvar Macron telur Trump ekki fylgjandi innlimun Vesturbakkans Sést til dróna við fjóra flugvelli í Danmörku Sjá meira