Skrifuðu undir samning vegna uppbyggingar íþróttamannvirkja og íþróttastarfs í Breiðholti atli ísleifsson skrifar 30. janúar 2017 17:12 Á svæði ÍR byggir Reykjavíkurborg knatthús sem ÍR mun reka samkvæmt sérstökum rekstrarsamningi. reykjavíkurborg
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Ingigerður Guðmundsdóttir, formaður ÍR, skrifuðu undir samning um uppbyggingu og rekstur íþróttamannvirkja í Breiðholti í dag. Í tilkynningu frá borginni segir að ÍR muni áfram annast rekstur íþróttahúsanna í hverfinu – íþróttahús Íþróttahús við Seljaskóla og Austurberg. Af hálfu Reykjavíkurborgar verði viðhaldsþörf mannvirkja, sem og ástand búnaðar metið. „ÍR fær húsaleigu- og æfingastyrk ár hvert í samræmi við reglur Íþróttabandalags Reykjavíkur (ÍBR) og Reykjavíkurborgar.Nýtt deiliskipulag fyrir Suður-Mjódd Suður-Mjódd verður deiliskipulögð í heild sinni og þar verður afnotasvæði ÍR afmarkað sérstaklega og jafnframt verður gengið frá fyrirkomulagi svæðisins í heild sinni en það tekur til stíga, gróðurs, bílastæða og mannvirkja sem gert er ráð fyrir að rísi á næstu árum. Þjónustuhús mun rísa við frjálsíþróttavöllinn og verður skipulag endurskoðað í því ljósi, sem og vegna göngutenginga við önnur mannvirki. Byggingareitir fyrir viðbyggingu við félagshús vegna bættrar félagsaðstöðu og fleiri búningsklefa, knatthúss og íþrótta- og keppnishúss, knattspyrnuvalla og áhorfendaaðstöðu verða markaðir í deiliskipulag.Tvö ný íþróttahús með viðbyggingum vegna búningsaðstöðu Á svæði ÍR byggir Reykjavíkurborg knatthús sem ÍR mun reka samkvæmt sérstökum rekstrarsamningi. Áætlað er að framkvæmdum við húsið verði lokið árið 2018 en hönnun hefjist á þessu ári. Þá byggir Reykjavíkurborg einnig íþróttahús með löglegum handknattleiks- og körfuboltavelli fyrir æfingar og keppnir á vegum ÍR ásamt viðbyggingum vegna búningsklefa og bættrar félagsaðstöðu fyrir félagið, auk endurbóta á núverandi félagsheimili. Áætlað er að húsið verði tekið í notkun árið 2020 og að hönnun hefjist 2018.Fimleikahús ásamt aðstöðu fyrir bardaga- og dansíþróttir Samkvæmt samkomulaginu hefst nú í ár undirbúningsvinna fyrir byggingu fimleikahúss, en uppbygging þess á að hefjast í framhaldi af byggingu knatthússins og íþróttahússins. Starfshópur um fimleikahúsið á að skila áfangaskýrslu um fyrirkomulag og staðsetningu fyrir 1. maí 2018. Í því mannvirki verður gert ráð fyrir aðstöðu fyrir bardagaíþróttir félagsins, sem og dansíþróttir. Áætlað er að byggingu fimleikahúss verði lokið fyrir haustið 2023.Nýr frjálsíþróttavöllur næsta sumar Á athafnasvæði ÍR í Mjódd standa nú þegar yfir framkvæmdir við frjálsíþróttavöll sem tekinn verður í notkun sumarið 2018. Á núverandi gervigrasvelli verður skipt um grasmottu og gúmmí í sumar,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira