Sölvi hlaut Nýsköpunarverðlaunin Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 31. janúar 2017 17:01 Verðlaunahafarnir.
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Sölvi Rögnvaldsson, BS-nemi í hagnýttri stærðfræði við Háskóla Íslands, hlaut verðlaunin fyrir verkefnið Áhættureiknir við meðhöndlun sjúklinga með mergæxli. Leiðbeinendur hans voru Sigrún Helga Lund, dósent í líftölfræði við Háskóla Íslands, og Sigurður Yngvi Kristinsson, prófessor í blóðsjúkdómum við Læknadeild Háskóla Íslands. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti Sölva verðlaunin. Áhættureiknir við meðhöndlun sjúklinga með mergæxli er tölfræðilíkan sem aðstoðar lækna við að ákvarða meðferð sjúklinga með mergæxli, sem er alvarlegt krabbamein í beinmerg. Líkanið notar upplýsingar um aldur, kyn og fyrirliggjandi sjúkdóma til að meta horfur sjúklingsins og hefur betra forspárgildi en sá áhættureiknir sem nú er notaður í blóðlækningum. Við þróun áhættureiknisins var notað umfangsmikið gagnasafn sem er einstakt á heimsvísu. Gögnin innihalda upplýsingar um sjúkdómsgreiningar og lifun ríflega 13.000 sænskra mergæxlissjúklinga á árunum 1985-2013. Til að gera áhættureikninn aðgengilegan blóðmeinasérfræðingum var útbúin vefsíða og iPhone smáforrit og stefnan er að koma áhættureikninum í notkun um allan heim. Aðferðafræðina sem þróuð var í verkefninu mætti ennfremur nota til að smíða áhættureikna fyrir aðra sjúkdóma.Verðlaunin í árNýsköpunarverðlaun forseta Íslands eru veitt árlega þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefnis sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna sumarið áður. Verðlaunin voru fyrst veitt 1996 og eru því nú veitt í tuttugasta og annað sinn.Fjögur önnur verkefni fengu sérstaka viðurkenningu:Framköllun fælniviðbragðs með sýndarveruleikaVerkefnið var unnið á Gervigreindarsetri Háskólans í Reykjavík af þeim Herði Má Hafsteinssyni, Ara Þórðarsyni og Gunnari Húna Björnssyni, í samstarfi við Íslenska erfðagreiningu og Nox Medical. Leiðbeinendur voru Hannes Högni Vilhjálmsson, dósent við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík og Bjarni V. Halldórsson dósent við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík og Íslenska erfðagreiningu.Hulda: Hljóð- og ljósskúlptúrVerkefnið var unnið af Lilju Maríu Ásmundsdóttur, nema frá Listaháskóla Íslands, undir handleiðslu Berglindar Maríu Tómasdóttur, dósents í flutningi og miðlun samtímatónlistar við Listaháskóla Íslands, og Jóns Marinós Jónssonar fiðlusmiðs.Kortlagning taugabrauta sameinuð þrívíddarmódelum til stuðnings við undirbúning heilaskurðaðgerðaVerkefnið var unnið af Írisi Dröfn Árnadóttur, meistaranema við Háskólann í Reykjavík. Leiðbeinendur voru Paolo Gargiulo, dósent við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík og Landspítala-háskólasjúkrahús, og Ingvar Hákon Ólafsson, heila- og taugalæknir við Landspítala-háskólasjúkrahús.Ræktun smáþörunga, nýr íslenskur hátækniiðnaðurVerkefnið var unnið af Bergþóri Traustasyni, nemanda í verkfræðilegri eðlisfræði, og Tryggva E. Mathiesen og Unni Elísabetu Stefánsdóttur, sem bæði stunda nám í matvælafræði við Háskóla Íslands. Leiðbeinendur verkefnisins komu frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, þeir Gissur Örlygsson, verkefnastjóri - örtækni og heilsutækni, og Kristján Leósson framkvæmdastjóri, og frá Keynatura þau Halla Jónsdóttir, yfirmaður rannsókna og þróunar, Sigurbjörn Einarsson líffræðingur og Sjöfn Sigurgísladóttir framkvæmdastjóri.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira