Erill hjá lögreglu liðna nótt Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 20. janúar 2017 07:18 Mikið var um að vera hjá lögeglunni í nótt. Vísir/HARI
Töluverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Þannig bárust tvær tilkynningar um heimilisofbeldi og líkamsárás, annars vegar í Austurbænum og hins vegar í Hafnarfirði. Í báðum tilfellum var karlmaður handtekinn og færður í fangageymslur að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Rétt um klukkan fjögur í nótt var svo akstur bifreiðar stöðvaður í Austurbænum. Við athugun lögreglu kom í ljós að bíllinn var stolinn, á röngum skráningarnúmerum, ökumaðurinn réttindalaus og undir áhrifum fíknefna. Með ökumanninum voru tveir farþegar, á öðrum fundust fundust ætluð fíkniefni og skuldaði sá einnig á aðra milljón í sektargreiðslur. Allir vistaðir í fangageymslu vegna málsins og verða þeir yfirheyrðir síðar í dag. Þá var tilkynnt um líkamsárás í húsi í Austurbænum rétt fyrir hálftvö í nótt. Meintur árásarmaður var farinn af vettvangi en sá sem ráðist var á var fluttur á slysadeild til aðhlynningar en sauma þurfti nokkur spor í höfuð hans. Um þrjúleytið var svo tilkynnt um mann í geðrofi í húsi í Kópavogi. Þegar lögregla kom á vettvang kom í ljós að maður var búinn að neyta einhverra efna, hann veittist að lögreglumönnum með spörkum og höggum og því var hann handtekinn og fluttur í fangageymslu lögreglu við Hverfisgötu. Þar verður hann vistaður þar til hann verður yfirheyrður síðar í dag. Rétt um klukkan hálfsex var svo maður handtekinn í Breiðholti fyrir að hafa sparkað upp hurð á og farið inn í sameign. Var hann vistaður í fangageymslu vegna málsins.
Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð Innlent Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss Innlent „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Innlent Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Innlent Fleiri fréttir Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ „Hræðilegar fréttir fyrir lýðræðið á Íslandi“ Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Dramatík á Alþingi og bílastæðablús hjá World Class Velti bílnum við Fjarðarhraun Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Sjá ekki fyrir endann á umfangsmikilli rannsókn á fíkniefnaframleiðslu „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sleginn í andlitið með hnúajárni Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu „Það er þarna sem rússneskir kafbátar fara í gegn“ Hélt á lokuðu umslagi Tillögur „ekki afhentar í lokuðu umslagi“ Uppþot og fúkyrði á þinginu og bandarískur kjarnorkukafbátur Jökulhlaupið í rénun Reyna að stilla til friðar í bakherbergjum Alþingis Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Fundu tuttugu kíló af grasi eftir húsleit í Hafnarfirði Mennirnir þrír sjáist ekki í myndefni Sjá meira