Ókeypis sundferðir heyri sögunni til Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. janúar 2017 07:00 Nokkrir gestir voru á leið í Laugardalslaugina í gær. Stök sundferð kostar 950 krónur. Magnús Már segir það lið í heilsueflingu að gefa starfsmönnum ókeypis aðgang. vísir/ernir
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í velferðarráði Reykjavíkurborgar leggja til að dregin verði til baka sú ákvörðun að starfsfólk Reykjavíkurborgar fái aðgang í sund sér að kostnaðarlausu. Tillagan er rökstudd með því að flestir starfsmenn borgarinnar séu langt yfir lágmarkslaunum og hafi ekki þörf fyrir niðurgreiddar sundferðir. Tillagan var lögð fram í framhaldi af því að tillaga var samþykkt í velferðarráði um að sundferðir og bókasafnsskírteini verði gjaldfrjáls fyrir atvinnulausa Reykvíkinga og einstaklinga með fjárhagsaðstoð frá borginni. Áslaug Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir í samtali við Fréttablaðið að sér finnist rétt að ræða hvort þessi styrkur sé sjálfsagður. „Og ef þetta er líkamsræktarstyrkur eins og mörg fyrirtæki greiða að þá hlýtur það að vera launakostnaður. Mér finnst eðlilegt að þetta sé gegnsærra og það er það sem ég er að fara með þessu.“ Áslaug segir að tillögunni hafi verið frestað í velferðarráði í gær og býst við því að hún verði rædd í borgarráði. „Mér finnst allt í lagi að leggja þetta til. Ef það koma einhver rök fyrir því að þetta eigi að vera, að þetta sé sjálfsagt og allt fært rétt, þá bara skoðum við það,“ segir Áslaug.Áslaug FriðriksdóttirMagnús Már Guðmundsson segir að starfsfólki hafi staðið til boða sundferðir sér að kostnaðarlausu í langan tíma. „Þetta átti um tíma einnig við um söfn og Fjölskyldu- og húsdýragarðinn en var tekið af. En sundið er ennþá inni og það er bara liður í því að gera vel við starfsfólk og heilsuefling í leiðinni,“ segir Magnús Már. Hann tekur fram að ekkert af þessu eigi við um kjörna fulltrúa. Starfsmenn sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu fá ólík boð eftir því hvar þeir eru. Samkvæmt upplýsingum frá Kópavogi fá starfsmenn bæjarins hvorki ókeypis á bókasafn né í sund en í Mosfellsbæ fá starfsmenn árskort í sund sér að kostnaðarlausu. „Það var gert á vegum þess að við erum heilsueflandi samfélag og viljum hvetja fólk til hreyfingar,“ segir Aldís Stefánsdóttir, forstöðumaður þjónustu og samskipta, hjá Mosfellsbæ. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira