Skemmtistað á Höfða lokað í nótt Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. janúar 2017 07:59 Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. vísir/ktd
Um klukkan eitt í nótt barst lögreglu tilkynning um að unglingar væru inni á skemmtistað á Höfðanum. Var farið á vettvang, öllum vísað út og staðnum lokað. Stúlka sem var inni á skemmtistaðnum neitaði að segja til nafns og að gefa upp heimilisfang. Hún var ekki með skilríki og var vistuð í fangageymslu vegna málsins. Rétt fyrir klukkan tvö var tilkynnt um mann sem var að ganga í veg fyrir bifreiðar í Vesturbænum. Hann sparkaði svo í leigubíl og braut hliðarspegilinn á bílnum. Maðurinn veittist síðan að leigubílstjóranum þegar hann neitaði að aka honum. Lögreglan handtók manninn og færði í fangageymslu en hann verður yfirheyrður í dag. Um klukkan þrjú var síðan tilkynnt um karlmann sem var að reyna að koma af stað slagsmálum í miðbænum. Þegar lögregla ætlaði að skakka leikinn þá veittist maðurinn að lögreglu og sló lögreglumann í andlitið. Í dagbók lögreglu segir að eftir nokkurt þóf, þar sem varnarúða var meðal annars beitt, var maðurinn handtekinn og fluttur í fangageymslu lögreglu við Hverfisgötu. Verður hann yfirheyrður síðar í dag vegna málsins. Þá var nokkuð um að vera hjá lögreglunni í Hafnarfirði þar sem rétt fyrir klukkan tvö var óskað eftir aðstoð lögreglu á skemmtistað í bænum. Þar voru dyraverðir með mann í tökum sem var mjög drukkinn og búinn að vera með læti inni á staðnum. Hann var vistaður í fangageymslu sökum ástands. Um hálftíma síðar var svo tilkynnt um líkamsárás á skemmtistað í Hafnarfirði. Gerandinn var handtekinn en hann hafði ráðist á mann og rifið og tætt föt hans. Var hann vistaður í fangageymslu og verður yfirheyrður seinna í dag. Fimm ökumenn voru stöðvaðir í nótt grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.
Mest lesið Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Erlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Kuldaskil á leið yfir landið Veður Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fleiri fréttir Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Sjá meira