Lúsin líka óboðinn gestur í Verzló Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. janúar 2017 14:45 Lúsin er mætt í Verzló og MR. Vísir/Vilhelm
Menntaskólinn í Reykjavík er ekki eini framhaldsskóli landsins sem glímir við hinn óboðna gest lúsina heldur er lúsin sömuleiðis mætt í Verzlunarskóla Íslands. Nemendur úr Verzló hafa haft samband við fréttastofu og gert athugasemdir við að vandinn beinist ekki aðeins að MR, sem kalla mætti erkifjendur Verzló, heldur einnig þeirra skóla. Má telja líklegt að vandamálið sé að finna í fleiri framhaldsskólum. Fréttastofu barst póstur frá nemanda í Verzló sem vildi ekki láta nafns síns getið. Sendur var út póstur til foreldra í síðustu viku vegna málsins. „Fyrir hönd Verzlunarskóla Íslands vil ég benda á að það er einnig lús að ganga í VÍ og okkur sárnar mjög að sjá að okkar lúsagangur fékk ekki að rata í fréttirnar. Vona að þið bætið úr þessu sem fyrst,“ segir nemandinn sem vill ekki koma fram undir nafni. Vandamálið mun hafa staðið yfir í nokkurn tíma í Ofanleiti. Lúsin er fastagestur í upphafi skólaárs og eftir frí í leikskólum og grunnskólum landsins en óalgengara er að hún mæti í framhaldsskólana, þó það sé ekki óþekkt. Svo virðist sem hún sé í töluverðri dreifingu núna þar sem Vísi hafa einnig borist ábendingar um lús í leikskólum og grunnskólum það sem af er ári. Rétt er minna á að lús er ekki merki um sóðaskap og allir geta smitast af henni þó smit sé algengast hjá börnum á aldrinum þriggja til ellefu ára. Hún er ekki talin bera með sér neina sjúkdóma og besta ráðið við henni er að kemba hárið. Nánar um það hér.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira