Vara nemendur HÍ við að þeim gæti verið byrlað ólyfjan Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 12. janúar 2017 15:00 Nemendur Háskóla Íslands fengu í dag tilkynningu þar sem brýnt var fyrir þeim að skilja ekki eftir mat eða drykk á glámbekk. Vísir/Eyþór
Nemendur við Háskóla Íslands fengu í dag tölvupóst frá Jóni Atla Benediktssyni rektor skólans þar sem öryggisnefnd skólans brýndi fyrir nemendum að skilja ekki við eigur sínar eftirlitslausar á háskólasvæðinu. Í tilkynningunni segir einnig að varasamt sé að skilja mat og drykkjarföng eftir ef fólk þarf að bregða sér frá. Ástæðan sé sú að ekki sé unnt að útiloka að óprúttnir einstaklingar laumi ólyfjan í neysluvörur á háskólasvæðinu.Tilkynningin sem send var á nemendur HÍ.SkjáskotSigríður Björnsdóttir, starfsmaður öryggisnefndar Háskóla Íslands, segir að engin dæmi séu þó fyrir slíku við skólann. „Þetta er bara svona almenn tilkynning frá öryggisnefndinni. Það er í rauninni ekkert á bakvið hana, engin dæmi eða eitthvað slíkt. Heldur viljum við bara að fólk sé meðvitað um það að skilja ekki hlutina sína eftir. Við vitum alveg að það hefur færst í vöxt í samfélaginu að það er verið að lauma einhverju í drykki hjá fólki. Við höfum bara heyrt af því og lesið um það í blöðunum,“ segir Sigríður í samtali við Vísi. „Við viljum líka benda á að háskólinn er líka opið svæði og hingað koma margir. Það er ekki hægt að hafa eftirlit með því. Þannig að við erum bara í heilsufars- og öryggisskyni að benda á þessar hættur sem geta verið hérna. Okkur finnst fólk ekki vera alveg nógu mikið á varðbergi, nemendumfinnst þetta svo öruggt umhverfi. Það er nú eiginlega bara það sem á baki liggur.“
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Sjá meira