Grunaður um að hafa ráðist á sambýliskonu sína er hún var með þriggja mánaða gamalt barn þeirra í fanginu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 13. janúar 2017 18:22 Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms um nálgunarbann og brottvísun af heimili. Vísir/GVA
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að maður skuli sæta nálgunarbanni og brottvísun af heimili sínu og sambýliskonu sinnar í fjórar vikur vegna gruns um að hann hafi ráðist á hana þann 3. janúar síðastliðinn. Maðurinn er grunaður um að hafa meinað konunni útgöngu úr íbúð þeirra þegar hún ætlaði að fara en hún var með 3 mánaða gamla dóttur þeirra í fanginu. Að því er fram kemur í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu er maðurinn grunaður um að hafa tekið um mitti konunnar og kastað henni og barninu í rúmið. „Þá hafi hann öskrað og kastað til hlutum í íbúðinni og m.a. brotið sjónvarpið. Hann hafi einnig lagst yfir hana og barnið þar sem hún lá með það í rúminu. Um hálftíma síðar hafi hún náð að komast út úr íbúðinni og hlaupa í bakarí sem sé þar skammt frá og kalla eftir aðstoð lögreglu,“ að því er segir í greinargerðinni. Héraðsdómur hafði einnig dæmt að maðurinn mætti ekki koma nálægt heimili foreldra konunnar en Hæstiréttur féllst ekki á það. Hann sætir hins vegar nálgunarbanni og brottvísun af heimili. Í úrskurði héraðsdóms kemur fram að í mars í fyrra hafi lögreglan verið kölluð til þar sem maðurinn hafði þá hrint konu sinni en hún var þá barnshafandi. Þá er maðurinn með dóm á bakinu vegna sérstaklega hættulegrar líkamsárásar á föður sinn en hann var dæmdur í 8 mánaða fangelsi sem skilorðsbundið var til þriggja ára.Dóm Hæstaréttar má nálgast hér.
Mest lesið Mótmæla heimsókn Ursulu von der Leyen Innlent „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Innlent Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Innlent Fagna áttatíu ára afmæli millilandaflugs Íslendinga Innlent Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Erlent „Raunhæfur möguleiki“ að hitamet falli á morgun Veður „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Innlent Maðurinn sem var stunginn í Mjóddinni liggur enn þungt haldinn Innlent Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Fleiri fréttir Fagna áttatíu ára afmæli millilandaflugs Íslendinga Mótmæla heimsókn Ursulu von der Leyen „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Leita logandi ljósi af nýju svæði undir kirkjugarð á Selfossi Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Barátta við illvígan sjúkdóm, furðuleg uppátæki fanga og svakalegar hitatölur Maðurinn sem var stunginn í Mjóddinni liggur enn þungt haldinn Gámurinn á bak og burt Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Sjá meira