Innlent

Leitin að Birnu: Ökumanns rauðs fólksbíls leitað

Atli Ísleifsson skrifar
Síðast er vitað um að Birna hafi verið í samskiptum við fólk á skemmtistaðnum Húrra við Tryggvagötu í Reykjavík.
Síðast er vitað um að Birna hafi verið í samskiptum við fólk á skemmtistaðnum Húrra við Tryggvagötu í Reykjavík. lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Lögregla hefur lýst eftir ökumanni rauðs fólksbíls, sennilega af gerðinni Kia Rio, sem ekið var vestur Laugaveg á móts við hús númer 31, klukkan 05:25 aðfararnótt laugardagsins 14. janúar, í tengslum við hvarf Birnu Brjánsdóttur. Leit stendur enn yfir.

„Birna er um 170 sm á hæð, með sítt ljósrautt hár, klippt með topp fram á ennið.  Hún var klædd í svartar gallabuxur, gráa peysu og svartan flísjakka með hettu. Þá var hún í svörtum uppreimuðum Dr. Martens skóm. 

Sjá einnig:Sporhundar notaðir við leitina og „Hún er alltaf online“

Síðast er vitað um að Birna hafi verið í samskiptum við fólk á skemmtistaðnum Húrra við Tryggvagötu í Reykjavík.  Birna sést í eftirlitsmyndavélum ganga ein síns liðs austur Austurstræti, Bankastræti og Laugaveg að húsi nr. 31 þar sem hún hverfur sjónum um kl 05:25.  Lögreglan biður alla þá sem veitt geta upplýsingar um ferðir Birnu og hvar hún er niðurkomin að hafa samband við lögreglu í síma 444 1109.

Birna Brjánsdóttir.
Í þágu rannsóknar þessa máls eru meðfylgjandi nokkrar myndir úr eftirlitsmyndavélum í miðborginni.  Á myndunum má sjá rauða fólksbifreið sem sennilega er af gerðinni Kia Rio.  Bifreiðinni var ekið vestur Laugaveg á móts við hús nr. 31, kl. 05:25 aðfararnótt laugardagsins 14. janúar sl.  

Í því skyni að leita upplýsinga um ferðir Birnu biður lögreglan ökumann rauðu bifreiðarinnar að hafa samband við lögreglu í síma 444 1109 sem allra fyrst. 

Þá biður lögreglan alla þá sem voru á ferðinni á þessum slóðum um kl. 05:25 aðfararnótt 14. janúar sl., og kynnu að hafa veitt Birnu Brjánsdóttur athygli að hafa samband við lögreglu,“ segir í tilkynningu frá lögreglu.

lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Tengdar fréttir

Árangurslaus leit að Birnu: Hún er alltaf „online“

Ekkert hefur spurst til Birnu Brjánsdóttur síðan aðfaranótt laugardagsins. Leit vina og vandamanna í gær skilaði ekki árangri. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu skoðaði upptökur úr eftirlitsmyndavélum og símagögn nær sleitulaust í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×