Rafmagnslaust í klukkutíma í álveri Alcoa á Reyðarfirði Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 18. janúar 2017 12:00
Rafmagnslaust varð í álveri Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði í um klukkustund í morgun en straumlaust varð meira og minna á öllu Austurlandi og truflanir urðu á Norðurlandi í kjölfarið vegna truflunar í flutningskerfi Landsnets. Rafmagn er nú komið aftur á í álverinu en Ragnar Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Alcoa Fjarðaáls, segir að viðbragðsáætlun hafi verið virkjuð vegna rafmagnsleysisins. Hún gangi út á að tryggja öryggi starfsfólks, koma þeim úr krönum og annað slíkt, og það hafi allt gengið vel, enginn hafi slasast eða verið í hættu. Ragnar segir að það sé aldrei gott þegar rafmagn fari af í álveri en þar sem klukkustund sé „innan marka“, eins og hann orðar það, eru ekki líkur til að tjónið sé mikið. Kerskáli álversins stöðvaðist og er nú unnið að því að koma honum í gang aftur en óljóst er hvenær starfsemi í honum verður orðin stöðug. Samkvæmt Steinunni Þorsteinsdóttur, upplýsingafulltrúa Landsnets, var fyrirvaralaus truflun í raforkukerfinu í dag um klukkan 09:20. „Truflunin tengdist skipulagðri aðgerð í tengivirki Landsnets í Fljótsdal og tengivirki Fjarðaáls. Bilun kom upp við aðgerðina og sló út allt álag Fjarðaáls. Í kjölfarið fóru allar vélar í Fljótsdalsstöð af neti og rafmagnslaust varð víðast hvar á Austurlandi í kjölfarið,“ segir Steinunn. Áhrif af trufluninni urðu víðtæk um Norður-og Austurland vegna umfangs truflunarinnar. „Varnir þær sem raforkukerfið hefur, skiptu landinu upp í tvo aðskilda hluta. Töluverður óstöðugleiki var áfram kerfinu norðaustanmegin, þar sem afl vantaði inn á raforkukerfið. Umtalsvert straumleysi varð því á Austurlandi. Samtenging á byggðalínurnar tókst rétt fyrir kl. 10. RARIK er nú að vinna í innsetningu á rafmagni til notenda á Austurlandi. Vélar í Fljótsdalvirkjun eru að koma inn hver af annarri og uppkeyrsla Fjarðaáls hafin,“ segir Steinunn.
Mest lesið Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Erlent Fleiri fréttir Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Sjá meira