Hvolpar skildir eftir bjargarlausir nærri þjóðveginum á Kjalarnesi atli ísleifsson skrifar 19. janúar 2017 08:15 Umráðamaður hvolpanna er óþekktur og liggur enginn undir grun að svo stöddu. Vísir/Vilhelm
Hvolpar fundust undir kyrrstæðum bíl á Kjalarnesi að kvöldi fimmtudagsins 15. desember síðastliðinn þar sem þeir höfðu verið skildir þar eftir bjargarlausir nálægt þjóðveginum. Í tilkynningu frá Matvælastofnun segir að verknaðurinn hafi verið kærður til lögreglu. „Ábending barst Matvælastofnun frá íbúum á Kjalarnesi sem fundu hvolpana. Um var að ræða þrjá blendingshvolpa sem fundust nálægt þjóðveginum. Einn hafði orðið fyrir bíl en hinir tveir fundust á lífi, töluvert vannærðir. Lyktin af þeim gaf til kynna að þeir hefðu verið haldnir í útihúsum. Farið var með hvolpana til Dýraspítalans í Garðabæ og þeim fundin ný heimili að aðhlynningu lokinni. Í lögum um velferð dýra segir að óheimilt sé að yfirgefa dýr í bjargarlausu ástandi. Jafnframt er óheimilt að sleppa dýrum sem hafa alist upp hjá mönnum út í náttúruna í þeim tilgangi að þau verði þar til frambúðar. Ef dýr strjúka eða sleppa úr haldi skulu umráðamenn þeirra þegar gera ráðstafanir til að handsama þau. Umráðamanni eða sveitarfélagi, sé umráðamaður ekki þekktur, er skylt að smala eða handsama dýr, önnur en villt dýr, sem ætla má að líði fyrir umhirðu- eða skjólleysi úti í náttúrunni. Umráðamaður hvolpanna er óþekktur og liggur enginn undir grun að svo stöddu. Þeir sem kunna að hafa vitneskju um málið eru hvattir til að setja sig í samband við Lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira