Svartfjallaland síðasta liðið inn í sextán liða úrslitin á HM kvenna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. desember 2017 18:32 Stelpurnar frá Svartfjallalandi fagna sæti í sextán liða úrslitunum. Vísir/Getty
Svartfjallaland varð í dag sextánda og síðasta liðið sem tryggði sér sæti í útsláttarkeppnini á heimsmeistaramóti kvenna í handbolta. Rúmenía og Þýskaland töpuðu bæði sínum fyrsta leik á mótinu í lokaumferðinni í en tapið skipti þær rúmensku engu máli. Svartfjallaland nægði 23-23 jafntefli á móti Brasilíu til að komast í hóp fjögurra efstu þjóðanna í sínum riðli en Brasilía setur hinsvegar eftir. Svartfjallaland var fyrir leikinn með eins stigs forskot á Brasilíu í baráttunni um fjórða sætið en Japan tryggði sig áfram úr C-riðlinum með sigri á Túnis fyrr í dag. Hollensku stelpurnar fóru illa með heimakonur í Þýskalandi og unnu átta marka sigur í lokaleik liðanna í D-riðli. Þetta var fyrsta tap þýska liðsins á mótinu en liðið hafði áður gert jafntefli við Serbíu. Holland gerði einnig jafntefli við Serbíu en hefur tekið sjö af átta stigum í boði eftir tap á móti Suður-Kóreu í fyrsta leik. Hollenska liðið vann 31-23 í kvöld en liðið var með mikla yfirburði nær allan leikinn. Holland fer upp í efsta sæti riðilsins eftir þennan sigur en bæði Serbía og Suður Kórea geta tekið toppsætið af þeim hollensku seinna í kvöld. Ungverjar tryggðu sér þriðja sætið í B-riðli, riðli Norðmanna, eftir eins marks sigur á Tékkum, 30-29. Rúmensku stelpurnar höfðu unnið fjóra fyrstu leiki sína þegar kom að leiknum við Frakka í dag en steinlágu með níu marka mun í honum. 26-17. Rúmenar voru öryggir með efsta sætið í A-riðli fyrir leikinn en bæði Slóvenía og Spánn gætu tekið annað sætið af Frökkum þegar þau mætast seinna í kvöld.Úrslitin á HM kvenna í handbolta í dag:A-riðill Angóla - Paragvæ 32-28 Frakkaland - Rúmenía 26-17 Spánn - Slóvenía Í kvöldStig þjóða: Rúmenía 8 Frakkland 7 Slóvenía 6 (Eiga leik inni í kvöld) Spánn 5(Eiga leik inni í kvöld) Angóla 2 Paragvæ 0B-riðill Argentína - Pólland 20-38 Tékkland - Ungverjaland 29-30 Noregur - Svíþjóð Í kvöldStig þjóða: Noregur 8 (Eiga leik inni í kvöld) Svíþjóð 6 (Eiga leik inni í kvöld) Ungverjaland 6 Pólland 4 Tékkland 4 Argentína 0C-riðill Japan - Túnis 31-13 Brasilía - Svartfjallaland 23-23 Danmörk - Rússland Í kvöldStig þjóða: Rússland 8 (Eiga leik inni í kvöld) Danmörk 8 (Eiga leik inni í kvöld) Japan 5 Svartfjallaland 5 Brasilía 4 Túnis 0D-riðill Kína - Kamerún 26-26 Holland - Þýskaland 31-23 Serbía - Suður Kórea Í kvöldStig þjóða: Holland 7 Þýskaland 7 Serbía 6 (Eiga leik inni í kvöld) Suður Kórea 6 (Eiga leik inni í kvöld) Kamerún 1 Kína 1
Handbolti Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Fleiri fréttir Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Stórbrotin varsla Grétars tryggði Haukum montréttinn: „Endar alltaf í svona vitleysu“ „Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ „Við erum Haukar og við horfum alltaf bara á toppinn“ Uppgjörið: FH - Haukar 34-35 | Haukar á toppnum og Hafnarfjörður er rauður Sigurður Dan skellti í lás og Stjarnan valtaði yfir Fram Lygilegt sigurmark HK í Vestmannaeyjum Dregið í bikarnum: Meistararnir fá gesti úr Garðabæ „Meira en tvö stig undir“ Garðar Ingi með þrjú mörk og Ómar og Gísli flugi áfram Sjá meira