Martin allt í öllu þegar Chalons-Reims endaði taphrinuna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. desember 2017 20:49 Martin Hermannsson. Vísir/Anton
Martin Hermannsson átti mjög góðan leik í kvöld þegar lið hans Chalons-Reims endaði fimm leikja taphrinu í frönsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Chalons-Reims vann á endanum með sex stiga mun, 70-64, eftir æsispennandi leik. Þetta var virkilega langþráður sigur eða sá fyrsti í deildinni síðan 20. október. Martin var frábær í kvöld með 21 stig, 7 stoðsendingar og 3 stolna bolta. Hann hitti úr 4 af 6 þriggja stiga skotum sínum þar af setti hann niður tvo risastóra þriggja stiga körfur í lokaleikhlutanum. Enginn á vellinum var með fleiri framlagsstig (27), fleiri stig (21), fleiri þrista (4) fleiri stoðsendingar (7) eða fleiri stolna bolta (3) en íslenski landsliðsbakvörðurinn. Chalons-Reims var 18-14 yfir eftir fyrsta leikhlutann en Hyères-Toulon vann annan leikkhlutann 26-17. Martin var með 11 stig og 2 stoðsendingar í fyrri hálfleiknum en Chalons-Reims var fimm stigum undir í hálfleik, 35-40. Hyères-Toulon komst níu stigum yfir í upphafi seinni hálfleik, 38-47, en Martin raðaði inn fjórum stoðsendingum á stuttum tíma, Chalons-Reims náði að jafna og síðan að komast yfir. Martin og félagar voru þremur stigum yfir fyrir lokaleikhlutann, 54-51, eftir að Martin endaði leikhlutann á því að skora góða körfu. Lokaleikhlutinn var æsispennandi en Martin setti niður nokkur stór skot og leiddi sitt lið til sigurs.
Körfubolti Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Svakaleg endurkoma Joshua í fyrsta bardaga hans eftir bílslysið Sport Lokadagur heimsleikanna í CrossFit: Í hvaða sætum enda Íslendingarnir? Sport Haaland kyndir undir Haaland-æði á samfélagsmiðlum Fótbolti Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sjá meira